Psa SálmarnirŽalmy, sálmuržalm SálmarnirKniha žalmů, sálmuržalm 99

Překlady Porovnat

Drottinn er konungur! Þjóðirnar skjálfi! Hásæti hans stendur miklu ofar englunum. Jörðin nötri í óttablandinni virðingu.Psa 93:1

Drottinn ríkir með hátign á Síon, æðri öllum konungum á jörðu. Þeir tigni hans háa og heilaga nafn!Psa 95:3; Psa 111:9

Drottinn er voldugur konungur. Hann elskar réttlæti. Réttvísi og heiðarleiki einkenna stjórnarfar hans. Þannig ríkir hann í Ísrael. Psa 103:6Vegsamið Drottin, hinn heilaga Guð! Föllum fram við fótskör hans.Rev 4:8

Móse og Aron voru prestar hans og Samúel spámaður hans. Þeir báðu til Drottins og hann bænheyrði þá. Úr skýstólpa talaði hann við þá, þeir hlustuðu og hlýddu fyrirmælum hans. Ó, Drottinn, þú ert okkar Guð! Þú svaraðir þeim og fyrirgafst syndir þeirra.

Tignið Drottin Guð! Tilbiðjið hann í Jerúsalem á fjallinu helga. Hann er heilagur.1Pe 1:16