Rom Rómverjabréfið, kafli Bréf Páls til Rómverja, kafli 7
Hvernig getur það verið? Voru þau ekki orsök þess að ég var dæmdur? Hvernig geta þau þá verið góð? Þau eru vissulega góð, en það var hins vegar syndin, það djöfullega fyrirbæri, sem notaði hið góða til að dæma mig til dauða. Af þessu ættuð þið að skilja hve slæg, banvæn og bölvuð hún er. Hún notar lög Guðs, sem eru góð, til að koma fram sínum illu fyrirætlunum.