Rom Rómverjabréfið, kafli Bréf Páls til Rómverja, kafli 9
Gyðingar hafna Kristi
Guð hefur verið þeim góður en samt vilja þeir ekki hlýða honum. Hann tók þá að sér sem útvalda þjóð og leiddi þá áfram í björtu og dýrlegu skýi og sýndi þeim blessun sína. Hann setti þeim lög og reglur til að fara eftir í daglegu lífi, svo að þeir þekktu vilja hans. Hann leyfði þeim að tilbiðja sig og hann gaf þeim mikil fyrirheit.