Luk Lúkas, kafli Lúkasarguðspjall, kafli 7
Jesús fór með þeim. Rétt áður en þeir komu að húsinu sendi höfuðsmaðurinn vini sína til Jesú með þessi skilaboð: „Herra, vertu ekki að ómaka þig með að koma inn til mín, því ég er hvorki verður þess að hitta þig né hafa þig sem gest. Segðu það aðeins með orði, þar sem þú ert staddur, og þá mun þræll minn læknast. Ég skil þig vel, því sjálfur þarf ég að hlýða æðri herforingjum, en hef síðan vald yfir mínum undirmönnum. Ég þarf aðeins að segja við þá: „Farið“ og þá fara þeir, eða: „Komið“ og þeir koma. Við þræl minn segi ég: „Gerðu þetta“ og hann hlýðir. Segðu því bara: „Læknist þú“ og þá mun þræll minn verða heilbrigður.“