Mat Matteus, kafli Matteusarguðspjall, kafli 2
Saklausum fórnað
Heródes varð æfur af reiði þegar hann komst að því að stjörnufræðingarnir höfðu brugðist honum og sendi þegar í stað alla hermenn til Betlehem. Hann gaf þeim skipun um að drepa alla drengi, tveggja ára og yngri, sem ættu heima þar í nágrenninu. Þetta gerði Heródes vegna þess að stjörnufræðingarnir höfðu sagt honum að þeir hefðu fyrst séð stjörnuna tveimur árum áður.