Psa SálmarnirMga Salmo, sálmursalmo SálmarnirAng Libro sa Mga Salmo, sálmursalmo 36

Mga hubad

Rödd syndarinnar talar í huga guðleysingjans og hvetur hann til vondra verka. Enginn guðsótti býr í hjarta hans. Syndin dregur hann á tálar, mistök hans verða augljós og menn hata hann. Svik og tál eru á vörum hans og hann er hættur að vera hygginn og breyta vel. Rom 12:9Á nóttunni liggur hann í rúmi sínu og upphugsar svik, forðast ekki hið illa.Psa 57:10

Drottinn, miskunn þín er mikil eins og himinninn og trúfesti þín takmarkalaus. Rom 11:33; 1Co 9:9Réttlæti þitt er stöðugt eins og fjöllin. Dómar þínir hvíla á vísdómi, þeir vitna um mikilleik þinn líkt og úthöfin. Þú berð umhyggju fyrir mönnum og skepnum. Psa 17:8Hversu dýrmæt er miskunn þín ó, Guð! Mennirnir leita skjóls í skugga vængja þinna. 2Co 8:9; Rev 21:6Þú nærir þá með krásum af borði þínu og lætur þá drekka úr lækjum unaðssemda þinna.

Þú, Drottinn, ert uppspretta lífsins! í þínu ljósi sjáum við ljós. Lát miskunn þína haldast við þá sem þekkja þig og réttlæti þitt við þá sem hlýða þér og elska.

Lát ekki fót hins hrokafulla troða á mér né hendur óguðlegra hrekja mig burt. Líttu á! Illgjörðamennirnir eru fallnir! Þeim hefur verið varpað um koll og þeir megna ekki að rísa upp aftur.