여러 번역본으로 본 시편 84
Lifandi Orð
84:1
84:2
OLO
84:3
OLO
Mig langar svo mjög, já ég þrái, að nálgast þig, hinn lifandi Guð.
84:4
OLO
Jafnvel spörvum og svölum leyfist að búa sér hreiður innan um ölturu þín og eiga þar unga sína. Þú Drottinn hinna himnesku hersveita, konungur minn og Guð minn!
84:5
OLO
Sælir eru þeir sem fá að búa í musteri þínu og syngja þér lof.
84:6
OLO
Sælir eru þeir sem fá styrk frá þér og þrá það eitt að ganga veg þinn.
84:7
OLO
Þegar þeir ganga gegnum táradalinn, þá breytir þú honum í vatnsríka vin og haustregrúð færir þeim blessun.
84:8
OLO
Þeir styrkjast á göngunni og fá að lokum að ganga fram fyrir Drottin í musteri hans á Síon.
84:9
OLO
Drottinn, Guð hersveitanna, heyrðu bæn mína! Hlusta þú Guð Ísraels.
84:10
OLO
Guð, þú ert vörn okkar, miskunna honum sem þú smurðir til konungs.
84:11
OLO
Einn dagur í musteri þínu er betri en þúsund aðrir sem eytt er á öðrum stað! Frekar vildi ég vera dyravörður í musteri Guðs míns, en búa í höllum óguðlegra.
84:12
OLO [84:12–13]
12Því að Drottinn er okkur ljós og skjöldur. Vegsemd og náð veitir hann. Hann neitar þeim ekki um nein gæði sem hlýða honum. 13Drottinn hersveitanna, sæll er sá maður sem treystir þér.
84:13
OLO