여러 번역본으로 본 시편 97
Lifandi Orð
97:1
OLO
Drottinn er konungur! Allur heimurinn gleðjist! Fagnið þið eyjar við ysta haf!
97:2
OLO
Tignarleg ský umlykja hann. Réttlæti og réttvísi eru undirstöður hásætis hans.
97:3
OLO
Eldur gengur út frá honum og eyðir öllum óvinum hans.
97:4
OLO
Elding hans leiftrar og lýsir upp jörðina. Heimurinn skelfur af ótta.
97:5
OLO
Fjöllin bráðna eins og vax fyrir Drottni.
97:6
OLO
Himnarnir kunngera réttlæti hans og allar þjóðir sjá dýrð hans.
97:7
OLO
Allir skurðgoðadýrkendur verða til skammar – þeir sem stæra sig af falsguðum – því að allir slíkir guðir verða að beygja sig fyrir Drottni.
97:8
OLO [97:8–9]
Jerúsalem og borgirnar í Júda hafa heyrt af réttvísi þinni, Drottinn, og fagna, því að þú ríkir með reisn yfir allri jörðinni og ert hátt yfir alla aðra guði hafinn.
97:9
OLO
97:10
OLO
Drottinn elskar þá sem hata hið illa. Hann verndar líf fylgjenda sinna og frelsar þá undan óguðlegum.
97:11
OLO
Ljós skal lýsa hinum réttlátu og gleði hlotnast hinum góðu.
97:12
OLO
Allir réttlátir fagni fyrir Drottni og vegsami hans heilaga nafn.