Dzieje 16 w różnych przekładach

Wybierz przekłady do porównania

Wybierz przekład, aby dodać go do listy; kolumny układają się w kolejności listy.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Polski

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

ไทย

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)

Deutsch

  • Byzantinischer Text
Lifandi Orð
16:1
OLO Páll og Sílas lögðu fyrst leið sína til Derbe og síðan til Lýstru. Þar hittu þeir Tímóteus, trúaðan mann. Hann átti kristna móður, sem var Gyðingur, en faðir hans var grískur.
16:2
OLO Bræðrunum í Lýstru og Íkóníum líkaði vel við Tímóteus,
16:3
OLO og bað Páll hann því að slást í för með sér. Vegna Gyðinganna, sem þarna bjuggu, fannst Páli rétt að umskera Tímóteus áður en þeir lögðu af stað, því að allir vissu að faðir hans var grískur (hann hafði ekki viljað leyfa slíkt fyrr en nú).
16:4
OLO Síðan fóru þeir þrír frá einum bæ til annars og kunngjörðu þær ákvarðanir, sem postularnir og öldungarnir í Jerúsalem höfðu tekið varðandi heiðingjana, sem yrðu kristnir.
16:5
OLO Í söfnuðunum fjölgaði nú dag frá degi og menn styrktust í trúnni.
16:6
OLO Þeir félagarnir fóru næst um héruðin Frýgíu og Galatíu, en ekki Asíuhéruð, því að þangað hafði heilagur andi bannað þeim að fara.
16:7
OLO Þeir héldu því fram með landamærum Mýsíu og ætluðu inn í Biþýníuhérað, en andi Jesú neitaði því aftur.
16:8
OLO Af þeim sökum fóru þeir um Mýsíu og til Tróas.
16:9
OLO Í Tróas fékk Páll vitrun um nótt. Sá hann mann frá Makedóníu í Grikklandi koma til sín. Maðurinn bað hann heitt og innilega: „Komdu til Makedóníu og hjálpaðu okkur.“
16:10
OLO Þar með var málið leyst. Nú vissum við hvert við áttum að fara. Til Makedóníu. Guð ætlaði að senda okkur þangað til að boða fagnaðarerindið.
16:11
OLO Við fórum með skipi frá Tróas, sigldum beint til Samóþrake og þaðan daginn eftir til Neapólis.
16:12
OLO Loks komum við til Filippí, rómverskrar nýlendu, rétt innan við landamæri Makedóníu, og þar dvöldumst við í nokkra daga.
16:13
OLO Á helgidegi Gyðinga fórum við spölkorn út fyrir borgina, fram með á nokkurri, til staðar sem við álitum vera hentugan bænastað. Þar settumst við niður og töluðum við konur sem þar voru saman komnar.
16:14
OLO Ein þeirra hét Lýdía. Var hún verslunarkona frá Þýatíru og seldi purpuraklæði. Hún var guðrækin. Meðan hún hlustaði á okkur, opnaði Drottinn hjarta hennar og hún tók á móti öllu sem Páll sagði.
16:15
OLO Hún lét skírast ásamt öllu heimilisfólki sínu og bauð okkur að gista hjá sér. „Ef þið álítið mig trúa Drottni,“ sagði hún, „komið þá og dveljist á heimili mínu.“ Hún lagði hart að okkur uns við létum undan.
16:16
OLO Dag einn, er við vorum á leið til bænastaðarins á árbakkanum, mættum við þjónustustúlku sem hafði illan anda. Hún spáði fyrir fólki og græddi þannig mikla peninga handa eigendum sínum.
16:17
OLO Allt í einu fór hún að elta okkur og hrópa: „Þessir menn eru þjónar Guðs og eru komnir til að segja ykkur hvernig þið getið fengið syndafyrirgefningu.“
16:18
OLO Þessu hélt hún áfram dag eftir dag, þar til Páll, sem líkaði þetta illa, sneri sér við og sagði við illa andann, sem í henni var: „Ég skipa þér í nafni Jesús að fara út af henni!“ Á sama andartaki fór andinn út.
16:19
OLO En nú var gróðavon eigenda hennar brostin. Þeir tóku því Pál og Sílas, drógu þá fyrir dómarana á markaðstorginu og hrópuðu:
16:20
OLO [16:20–21] „Þessir Gyðingar eru að setja borgina á annan endann! Þeir hvetja fólk til að óhlýðnast rómverskum lögum!“
16:21
OLO
16:22
OLO Þeir æstu múginn gegn Páli og Sílasi, svo að dómararnir fyrirskipuðu að þeir skyldu afklæddir og barðir með prikum.
16:23
OLO Og það var gert – þeir voru barðir mörg högg, og að því loknu var þeim varpað í fangelsi. Fangavörðurinn fékk hótun um að hann yrði tekinn af lífi, ef þeir slyppu.
16:24
OLO Til að eiga ekkert á hættu stakk hann þeim í innri dýflissuna og læsti hendur þeirra og fætur í stokka.
16:25
OLO Um miðnættið, er Páll og Sílas voru að biðja og lofa Drottin í áheyrn hinna fanganna,
16:26
OLO kom skyndilega mikill jarðskjálfti. Fangelsið hristist og skalf á undirstöðu sinni, allar dyr hrukku upp og hlekkirnir féllu af föngunum.
16:27
OLO Fangavörðurinn vaknaði og það fyrsta sem hann sá var að fangelsisdyrnar stóðu upp á gátt. Hann áleit strax að fangarnir væru flúnir og dró því upp sverð sitt til að fyrirfara sér.
16:28
OLO „Gerðu þetta ekki!“ hrópaði Páll til hans. „Við erum hér allir!“
16:29
OLO Fangavörðurinn skalf af ótta og bað um ljós, hljóp inn í dýflissuna og kraup frammi fyrir Páli og Sílasi.
16:30
OLO Síðan leiddi hann þá út og spurði óttasleginn: „Herrar mínir, hvað á ég að gera til þess að ég frelsist?“
16:31
OLO Þeir svöruðu: „Trúðu á Drottin Jesú og þá muntu frelsast og allt þitt heimafólk.“
16:32
OLO Þeir fluttu honum, og heimilisfólki hans, gleðiboðskapinn frá Drottni.
16:33
OLO Eftir það þvoði hann sár þeirra og lét skírast ásamt allri fjölskyldu sinni.
16:34
OLO Og hann fór heim með þá og gaf þeim að borða og gladdist mjög ásamt heimilisfólki sínu yfir að hafa tekið trú á Guð.
16:35
OLO Morguninn eftir sendu borgarstjórarnir þessi boð til fangavarðarins: „Láttu þessa menn lausa!“
16:36
OLO Fangavörðurinn tilkynnti því Páli að þeir mættu fara frjálsir ferða sinna.
16:37
OLO En Páll svaraði: „Nei, svona geta þeir ekki farið að. Þeir hafa barið okkur opinberlega án dóms og síðan stungið okkur í fangelsi – okkur sem erum rómverskir borgarar. Nú ætla þeir að sleppa okkur svo lítið beri á, en það komast þeir ekki upp með. Þeir skulu koma í eigin persónu og leiða okkur út!“
16:38
OLO Sendiboðarnir fluttu borgarstjórunum þessi skilaboð. Þegar þeir heyrðu að Páll og Sílas væru rómverskir borgarar, urðu þeir mjög hræddir.
16:39
OLO Þeir fóru til fangelsisins, báðu þá afsökunar, leiddu þá út og báðu þá að fara burt úr borginni.
16:40
OLO Þegar Páll og Sílas voru lausir úr fangelsinu, fóru þeir heim til Lýdíu og hittu þar hina trúuðu. Þeir hughreystu þá með orði Guðs og héldu síðan áfram ferðinni.