1 Фессалоникийцам 4 в разных переводах

Выберите переводы для сравнения

Нажмите на перевод, чтобы добавить его в список; колонки идут в порядке списка.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

ไทย

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)

Deutsch

  • Byzantinischer Text
Lifandi Orð
4:1
OLO Kæru vinir, núorðið vitið þið hvernig við eigum að lifa okkar daglega lífi svo að Guði líki.
4:2
OLO Þið þekkið þau boðorð sem við fluttum ykkur frá sjálfum Drottni Jesú. Nú biðjum við ykkur, og það af öllu hjarta og í nafni Drottins Jesú, að þið fetið dyggilega í fótspor hans og hlýðið honum.
4:3
OLO [4:3–4] Því að Guð vill að þið séuð heilög og hrein og forðist allt lauslæti. Sérhver umgangist maka sinn í heilagleik og sæmd,
4:4
OLO
4:5
OLO en ekki í brennandi girnd eins og heiðingjarnir, sem hvorki þekkja Guð né vilja hans.
4:6
OLO Annað langar mig að nefna í þessu sambandi og það er líka vilji Guðs. Beitið engan þeim órétti að taka frá honum konu hans, því að fyrir slíkt mun Drottinn refsa harðlega, eins og við höfum áður sagt.
4:7
OLO Guð kallaði okkur ekki til að lifa í óhreinleika og girnd, heldur í hreinleika og helgun.
4:8
OLO Ef einhver neitar að lifa eftir þessum boðum, þá óhlýðnast hann ekki boðum manna, heldur Guðs, sem gefur heilagan anda og vill að þið séuð heilög.
4:9
OLO En um bróðurkærleikann sem á að ríkja meðal Guðs fólks, get ég verið stuttorður, því ég þekki ykkur! Guð hefur sjálfur kennt ykkur að elska hvert annað.
4:10
OLO Kærleikur ykkar til kristinna samlanda ykkar er orðinn mjög rótgróinn. En jafnvel þótt svo sé, kæru vinir, þá er það innileg bæn okkar að þið takið enn meiri framförum.
4:11
OLO Það er ykkur til sóma að lifa kyrrlátu lífi, vera skyldurækin og stunda störf ykkar, eins og við höfum áður sagt.
4:12
OLO Þannig hegðið þið ykkur með sóma gagnvart þeim sem ekki eru trúaðir og verðið upp á engan komin.
4:13
OLO Kæru vinir, nú langar mig að segja ykkur hvað verður um þann sem kristinn er, eftir að hann deyr, svo að þið séuð ekki kvíðafull eins og þeir sem ekki hafa tekið á móti hjálpræði Guðs.
4:14
OLO Fyrst við trúum því að Jesús hafi dáið og risið upp, þá getum við einnig treyst því að þegar hann kemur aftur, þá muni Guð vekja til lífs alla þá sem dáið hafa í trú á hann.
4:15
OLO Það sem ég nú segi byggir á orðum Drottins. Við sem verðum á lífi þegar Drottinn kemur, munum ekki rísa upp til fundar við hann á undan þeim sem þegar eru dánir.
4:16
OLO Þegar kall erkiengilsins hljómar og básúna Guðs gellur, þá mun Drottinn stíga niður af himni og kristnir menn rísa upp til fundar við hann – fyrst hinir dánu,
4:17
OLO en síðan við, sem þá verðum á lífi. Við verðum hrifin upp á skýjum ásamt þeim, til að vera með Drottni um alla eilífð.
4:18
OLO Huggið og uppörvið hvert annað með þessum orðum.