Rev Opinberunarbókin, kafli Opinberunarbók Jóhannesar, kafli 18
Þá tók voldugur engill upp stóran stein, líkan kvarnarsteini, fleygði honum í hafið og hrópaði: „Babýlon, borgin mikla, henni mun verða fleygt burt eins og ég fleygði þessum steini. Hún mun hverfa svo að hvorki sjáist tangur né tetur af henni upp frá því.