1 ทิโมธี 3 ในหลายฉบับแปล

เลือกฉบับแปลที่จะเปรียบเทียบ

เลือกฉบับแปลเพื่อเพิ่มลงในรายการ คอลัมน์จะเรียงตามลำดับในรายการ

  1. Lifandi Orð

Íslenska

ไทย

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)

Deutsch

  • Byzantinischer Text
Lifandi Orð
3:1
OLO Það er rétt og satt að sækist einhver eftir prests- eða biskupsstarfi, þá girnist hann fagurt hlutverk.
3:2
OLO Slíkur maður skal vera til fyrirmyndar og lifa hreinu og heiðvirðu lífi. Hann verður að vera eiginkonu sinni trúr, tillitssamur, reglusamur og láta jafnan gott af sér leiða. Hann á að vera gestrisinn og góður uppfræðari.
3:3
OLO Hann má ekki vera drykkfelldur eða þrasgjarn, heldur prúður og góðgjarn og alls ekki sólginn í fé.
3:4
OLO Fjölskylda hans verður að sýna góða hegðun og börn hans eiga að hlýða strax og athugasemdalaust,
3:5
OLO því að hvernig á maður að stjórna heilum söfnuði, sem ekki getur stjórnað eigin fjölskyldu?
3:6
OLO Biskup eða safnaðarleiðtogi á ekki að vera nýr í trúnni, svo að hann ofmetnist ekki og rógberarnir fái höggstað á honum.
3:7
OLO Hann verður einnig að hafa gott orð á sér meðal þeirra sem ekki eru kristnir, svo að Satan ásaki hann ekki og hann missi kjarkinn til að leiða söfnuðinn.
3:8
OLO Aðrir þjónar og starfsmenn safnaðarins eiga líka að vera góðir og traustir. Ekki óáreiðanlegir, drykkfelldir eða gráðugir í peninga.
3:9
OLO Þeir verða að taka hlutina alvarlega og fylgja Kristi heils hugar, því að hann er uppspretta trúar þeirra.
3:10
OLO Látið þessa menn sinna fyrst öðrum minni háttar störfum fyrir söfnuðinn, til að reyna staðfestu þeirra og hæfileika, áður en þeim er fengið fullt starf. Ef þeir standa sig vel, þá má gjarnan velja þá sem safnaðarþjóna.
3:11
OLO Konur eiga að vera siðprúðar, en ekki raupsamar. Þær stjórnist af hófsemi og séu trúar í öllu.
3:12
OLO Safnaðarþjónn á að vera eiginkonu sinni trúr, og reglusemi og gleði skal ríkja á heimili þeirra.
3:13
OLO Þeir sem standa sig vel sem safnaðarþjónar, munu njóta virðingar fólksins, þeim mun aukast kjarkur og trú þeirra vaxa.
3:14
OLO Mér finnst rétt að skrifa þér um þessa hluti, enda þótt ég vonist til að hitta þig bráðlega,
3:15
OLO því ef mér seinkar, þá veistu hverja þú átt að velja til leiðtogastarfa í söfnuði Guðs – þá sem halda sannleika Guðs hátt á lofti.
3:16
OLO Víst er guðrækilegt líferni enginn leikur, en það er þó mögulegt í samfélaginu við Krist. Hann kom til jarðarinnar sem maður. Hann reyndist hreinn og syndlaus í anda sínum og englar þjónuðu honum. Hann var boðaður meðal þjóðanna, hvarvetna trúðu menn á hann og síðan var hann hafinn upp í dýrð himnanna.