2 โครินธ์ 6 ในหลายฉบับแปล

เลือกฉบับแปลที่จะเปรียบเทียบ

เลือกฉบับแปลเพื่อเพิ่มลงในรายการ คอลัมน์จะเรียงตามลำดับในรายการ

  1. Lifandi Orð

Íslenska

ไทย

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)

Deutsch

  • Byzantinischer Text
Lifandi Orð
6:1
OLO Sem samstarfsmenn Guðs biðjum við ykkur að láta ekki þessi góðu skilaboð, um kærleika hans ganga ykkur úr greipum.
6:2
OLO Guð hefur sagt: „Þegar þið hrópuðuð, þá heyrði ég, og hjálp mín stóð ykkur til boða, því að þá var hjálpræðisdagur.“ Já, einmitt nú er Guð reiðubúinn að svara ykkur. Í dag vill hann frelsa ykkur!
6:3
OLO Við kappkostum að lifa þannig að hegðun okkar hneyksli engan né hindri í því að finna Drottin.
6:4
OLO Látum það sjást að við séum sannir þjónar Guðs í öllu sem við gerum. Þolinmæði okkar stendur af sér allar þjáningar, þrengingar og erfiðleika.
6:5
OLO Við höfum verið barðir, okkur hefur verið stungið í fangelsi og oft höfum við horfst í augu við trylltan múg. Við höfum unnið meðan kraftar entust, vakað margar nætur og liðið hungur.
6:6
OLO Við höfum staðið við orð okkar og lifað heilbrigðu lífi. Þessu hefur þrautseigja og skilningur okkar á fagnaðarerindinu komið til leiðar. Við höfum iðkað góðsemi og sannan kærleika og verið leiddir af heilögum anda.
6:7
OLO Við höfum talað sannleikann og máttur Guðs hefur hjálpað okkur í öllu sem við höfum gert. Við höfum íklæðst herklæðum hins kristna manns – og notað vopnin til sóknar og varnar.
6:8
OLO Við höfum verið Drottni trúir, hvort sem aðrir heiðra okkur eða forsmá, lasta eða lofa. Við erum heiðarlegir, þótt þeir kalli okkur lygara.
6:9
OLO Heimurinn lætur sér fátt um okkur finnast, en Guð þekkir okkur. Við erum í stöðugri lífshættu, en þó lifum við enn. Við höfum hlotið sár, en þó haldið lífi.
6:10
OLO Við erum hryggir, en þó alltaf glaðir í Drottni. Við erum fátækir, en auðgum þó marga með andlegum gjöfum. Við erum allslausir, en eigum þó allt.
6:11
OLO Kæru vinir í Korintu. Ég hef talað af hreinskilni og ég elska ykkur af öllu hjarta.
6:12
OLO Ef einhver kuldi er enn okkar á milli, þá er hann ekki vegna skorts á kærleika af minni hálfu, heldur vegna þess að kærleikur ykkar nær ekki til mín og megnar því ekki að draga mig til ykkar.
6:13
OLO Nú tala ég við ykkur eins og þið væruð mín eigin börn. Opnið hjörtu ykkar fyrir okkur. Endurgjaldið kærleika okkar.
6:14
OLO Forðist félagsskap við þá sem ekki elska Drottin, því hvað eiga börn Guðs sameiginlegt með börnum syndarinnar? Hvernig er hægt að sameina ljós og myrkur?
6:15
OLO Hvað á Kristur saman við Satan að sælda? Hvernig getur kristinn maður átt samfélag við þann sem ekki trúir?
6:16
OLO Getur nokkurt samband verið milli musteris Guðs og skurðgoðanna? Þið eruð musteri Guðs, bústaður hins lifandi Guðs, og um ykkur segir hann: „Ég vil búa hjá þeim og ganga um meðal þeirra. Ég mun vera þeirra Guð og þeir munu vera mitt fólk.“
6:17
OLO Af þessari ástæðu segir Drottinn: „Yfirgefið þá! Farið burt frá þeim. Snertið ekkert óhreint og þá mun ég taka ykkur með mér.
6:18
OLO Þá mun ég vera faðir ykkar og þið munuð vera synir mínir og dætur.“