สดุดี 111 ในหลายฉบับแปล
Lifandi Orð
111:1
OLO [111:1–2]
Hallelúja! Ég þakka Guði máttarverk hans, já, í áheyrn og augsýn allrar þjóðarinnar. Allir sem vilja, íhugi þetta ásamt mér.
111:2
OLO
111:3
OLO
Því að máttarverkin lýsa mikilleika hans, hátign og eilífum kærleika.
111:4
OLO
Hver getur gleymt dásemdarverkum hans, miskunn hans?
111:5
OLO
Hann annast þarfir þeirra sem honum treysta og gleymir ekki loforðum sínum.
111:6
OLO
Hann sýndi mátt sinn er hann gaf þjóð sinni landið Ísrael – land sem margar þjóðir byggðu.
111:7
OLO
Allt gerir hann af trúfesti og réttlæti og öll fyrirmæli hans eru áreiðanleg og góð,
111:8
OLO
gefin í kærleika og af réttvísi – þau munu standa að eilífu.
111:9
OLO
Hann hefur frelsað þjóð sína og gert við hana eilífan sáttmála. Heilagt og óttalegt er nafn Drottins.
111:10
OLO
Hvernig öðlast menn visku? Með því fyrst að óttast og heiðra Guð og síðan með því að halda lög hans. Lofað sé nafn hans að eilífu.