วิวรณ์ 10 ในหลายฉบับแปล

เลือกฉบับแปลที่จะเปรียบเทียบ

เลือกฉบับแปลเพื่อเพิ่มลงในรายการ คอลัมน์จะเรียงตามลำดับในรายการ

  1. Lifandi Orð

Íslenska

ไทย

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)

Deutsch

  • Byzantinischer Text
Lifandi Orð
10:1
OLO Þá sá ég annan voldugan engil stíga niður af himnum. Hann var umlukinn skýi og regnbogi var yfir höfði hans. Andlit hans skein sem sólin og fætur hans voru líkastir eldsúlum.
10:2
OLO Hann hélt á lítilli bók í annarri hendi og var hún opin. Hann steig hægri fæti á hafið og þeim vinstri á jörðina,
10:3
OLO og hrópaði hárri röddu – það var eins og ljónsöskur – og sjö þrumur svöruðu honum.
10:4
OLO Ég ætlaði að fara að skrifa niður það sem þrumurnar sögðu, en þá var kallað til mín frá himni: „Gerðu þetta ekki. Orð þeirra mega ekki berast út.“
10:5
OLO Þá lyfti engillinn voldugi, sem stóð á hafinu og jörðinni, hægri hendi til himins,
10:6
OLO og sór við þann sem lifir um alla eilífð, hann sem skapaði himin og allt sem þar er, jörðina og allt sem á henni er, hafið og allt sem í því er, og sagði: „Nú er fresturinn á enda!
10:7
OLO Þegar sjöundi engillinn blæs í lúður sinn, mun leyndardómur Guðs birtast og verða að veruleika, eins og hann boðaði þjónum sínum, spámönnunum, forðum daga.“
10:8
OLO Röddin frá himni talaði aftur til mín og sagði: „Farðu og taktu opnu bókina úr hendi volduga engilsins, sem stendur á hafinu og jörðinni.“
10:9
OLO Ég gekk til hans og bað hann að afhenda mér bókina. „Já, taktu hana og borðaðu hana,“ sagði hann. „Fyrst mun hún bragðast eins og hunang, en þegar þú hefur rennt henni niður finnst þér hún beisk.“
10:10
OLO Þá tók ég við bókinni úr hendi hans og át hana. Það fór eins og hann hafði sagt, fyrst var hún sæt, en þegar ég hafði rennt henni niður fann ég sáran sviða.
10:11
OLO Þá sagði hann við mig: „Þú átt eftir að bera fram marga aðra spádóma um fólk, þjóðir, ættkvíslir og konunga.“