วิวรณ์ 19 ในหลายฉบับแปล

เลือกฉบับแปลที่จะเปรียบเทียบ

เลือกฉบับแปลเพื่อเพิ่มลงในรายการ คอลัมน์จะเรียงตามลำดับในรายการ

  1. Lifandi Orð

Íslenska

ไทย

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)

Deutsch

  • Byzantinischer Text
Lifandi Orð
19:1
OLO Eftir þetta heyrði ég mikinn fjölda á himnum hrópa og segja: „Hallelúja! Dýrð sé Guði! Hjálpin kemur frá Guði. Hans er mátturinn og dýrðin,
19:2
OLO því að dómar hans eru réttlátir og sannir. Hann refsaði skækjunni miklu, sem spillti jörðinni með syndum sínum, og hann hefur hefnt fyrir morðin á þjónum sínum.“
19:3
OLO Aftur og aftur var endurtekið: „Dýrð sé Guði! Reykurinn frá rústum hennar mun stíga upp um alla eilífð!“
19:4
OLO Öldungarnir tuttugu og fjórir og verurnar fjórar féllu fram og tilbáðu Guð, sem sat í hásætinu, og sögðu: „Amen! Hallelúja! Dýrð sé Guði!“
19:5
OLO Þá sagði rödd, sem kom frá hásætinu: „Lofið Guð allir þjónar hans, stórir og smáir, allir þið, sem óttist hann.“
19:6
OLO Síðan heyrði ég undursamlegan hljóm, eins og söng frá miklum mannfjölda, líkastan brimgný við klettótta strönd eða þrumugný: „Lofið Drottin! Nú hefur Drottinn Guð hinn almáttki tekið völdin.
19:7
OLO Gleðjumst, fögnum og tignum hann, því að nú er brúðkaupsveisla lambsins að hefjast og brúðurin hefur búið sig.
19:8
OLO Hún á rétt á að klæðast því hreinasta, hvítasta og dýrasta líni sem til er.“ Dýra línið táknar góðverkin sem börn Guðs hafa unnið.
19:9
OLO Engillinn bað mig nú að skrifa eftirfarandi setningu: „Sælir eru þeir, sem boðnir eru í brúðkaupsveislu lambsins.“ Síðan sagði hann: „Þetta eru orð Guðs sjálfs.“
19:10
OLO Þá féll ég til fóta honum til þess að tilbiðja hann, en hann sagði: „Nei! Gerðu þetta ekki! Ég er þjónn Guðs, rétt eins og þú og hinir kristnu meðbræður þínir sem vitna um trú sína á Krist. Tilbið Guð einan, því að tilgangur spádómanna og alls þess, sem ég hef sýnt þér, er sá að benda á Jesú.“
19:11
OLO Síðan sá ég himininn opinn og hvítan hest standa þar. Sá sem á hestinum sat heitir „trúr og sannur“ og hann berst og refsar með réttvísi.
19:12
OLO Augu hans eru sem eldslogar og á höfðinu ber hann margar kórónur. Nafn er á enni hans, en hann einn veit merkingu þess.
19:13
OLO Föt hans eru blóði drifin og hann er nefndur „orð Guðs“.
19:14
OLO Hersveitir himnanna fylgdu honum á hvítum hestum, en þær voru klæddar dýru líni, hvítu og hreinu.
19:15
OLO Í munni sínum hefur hann beitt sverð til þess að höggva þjóðirnar með og hann stjórnar þeim með járnaga. Hann treður og pressar vínþrúgurnar í þró, sem kallast „heiftarreiði Guðs hins útvalda“.
19:16
OLO Á skikkju hans og mitti er skrifað nafn: KONUNGUR KONUNGA OG DROTTINN DROTTNA.
19:17
OLO Þá sá ég engil sem stóð á sólinni. Hann kallaði hárri röddu til fuglanna: „Komið! Komið hingað til kvöldmáltíðar hins mikla Guðs!
19:18
OLO Komið og etið hold konunga, kappa og háttsettra hershöfðingja, hesta og knapa þeirra og allra manna, bæði hárra og lágra, frjálsra og ánauðugra.“
19:19
OLO Eftir það sá ég að dýrið, hið illa, safnaði saman valdamönnum heimsins og herjum þeirra til stríðs gegn honum, sem á hestinum sat, og hersveitum hans.
19:20
OLO Og dýrið var handtekið ásamt falsspámanninum, þeim sem gat gert mikil kraftaverk, ef dýrið var viðstatt – kraftaverk sem blekktu þá sem höfðu látið setja á sig merki dýrsins og tilbáðu líkneski þess. Þeim báðum – dýrinu og falsspámanninum – var fleygt lifandi í eldsdíkið, sem kraumar af logandi brennisteini.
19:21
OLO Herir þeirra voru stráfelldir með beitta sverðinu sem gekk út af munni þess, sem sat á hvíta hestinum, og fuglar himinsins átu sig sadda af hræjum þeirra.