Mezmurlar 52 farklı çevirilerde
Lifandi Orð
52:1
OLO
Þennan sálm orti Davíð
52:2
OLO
til að andmæla óvini sínum Dóeg sem síðar tók af lífi áttatíu og fimm presta og fjölskyldur þeirra (sjá: 1. Sam. 22.).
52:3
OLO
Kallar þú þig hetju?! Þú sem hreykir þér af ódæði gegn þjóð Guðs og herðir þig gegn miskunn hans.
52:4
OLO
Þú ert eins og skeinuhættur hnífur, þú svikahrappur!
52:5
OLO
Þú elskar illt meir en gott, lygi umfram sannleika.
52:6
OLO
Rógburð elskar þú og annað skaðræðistal!
52:7
OLO
En Guð mun koma þér á kné, draga þig út úr húsi þínu og uppræta af landi lifenda.
52:8
OLO
Hinir réttlátu munu sjá það og óttast Guð, síðan hlægja og segja:
52:9
OLO
„Svo fer fyrir þeim sem fyrirlíta Guð og treysta á mátt sinn og megin, þeim sem þrjóskast í illsku sinni.“
52:10
OLO
Ég er sem grænt olífutré í garði Guðs. Ég treysti á miskunn hans meðan ég lifi.
52:11
OLO
Drottinn, ég vil vegsama þig að eilífu og þakka það sem þú hefur gert. Ég segi hinum trúuðu: Góður er Guð!