Mezmurlar 77 farklı çevirilerde

Karşılaştırılacak çevirileri seçin

Listeye eklemek için bir çeviri seçin; sütunlar listenin sırasını izler.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Türkçe

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

中文

Français

Italiano

Српски / Srpski

Hrvatski

Svenska

Magyar

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Tiếng Việt

ไทย

한국어

हिन्दी

Türkçe

  • Temel Tercüme

Русский

  • Десницкий
  • Кассиан

English

  • African International (Paraphrase, American)
  • African International (Paraphrase, British)
  • African International (Literal, American)
  • African International (Literal, British)
  • Majority Text
  • Targum Onkelos (Etheridge)
  • Text-Critical English

Deutsch

  • Byzantinischer Text

Polski

  • Słowo Życia

Español

  • Biblia Libre (Nuevo Testamento)

Português

  • Tradução para Tradutores

中文

  • 易读圣经

Ἀρχαία Ἑλληνική

  • Textus Receptus
  • Patriarchal 1904
  • Solid Rock
  • Family 35
  • Text-Critical Greek

Hrvatski

  • Knjiga o Kristu

Čeština

  • Slovo na cestu

Eesti

  • Kaasaegne eesti

Magyar

  • Élet, igazság és világosság

Slovenčina

  • Nádej pre každého

Suomi

  • Elävä uutinen

Norsk bokmål

  • En Levende Bok

Nederlands

  • Gods Boek

Български

  • Съвременен

Bahasa Indonesia

  • Mudah Dibaca
Lifandi Orð
77:1
OLO Ég ákalla Drottin. Ég hrópa og kalla til hans. Ó, að hann vildi hlusta!
77:2
OLO Ég er í miklum vanda og þarfnast mjög hjálpar hans. Alla nóttina er ég á bæn, ég lyfti höndum til himins, – ég bið og bið. Ég mun ekki eiga glaðan dag fyrr en Drottinn hefur hjálpað mér.
77:3
OLO Ég hugsa um Guð, mikið þrái ég hjálp hans!
77:4
OLO Drottinn, mér mun ekki koma dúr á auga fyrr en þú hefur hjálpað mér. Ég er við það að gefast upp, jafnvel bænin er mér erfið.
77:5
OLO Góðar minningar liðinna ára leita sífellt á huga minn.
77:6
OLO Þá sungum við gleðiljóð langt fram á kvöld! Ég velti þessu fyrir mér, íhuga hve allt hefur breyst.
77:7
OLO Hefur Drottinn hafnað mér fyrir fullt og allt? Mun hann ekki miskunna mér framar?
77:8
OLO Elskar hann mig ekki lengur og er umhyggja hans búin fyrir fullt og allt? Gekk hann á bak orða sinna?
77:9
OLO Gleymdi hann miskunn sinni við mig, vesalinginn? Hefur hann í reiðikasti lokað dyrum kærleika síns?
77:10
OLO „Þetta eru örlög mín,“ sagði ég, „blessun Guðs hefur snúist í bölvun.“
77:11
OLO Ég renni huganum yfir alla þá blessun sem ég hef notið frá Guði.
77:12
OLO Sú gæfa gleymist seint! – Já, hún líður mér aldrei úr minni!
77:13
OLO Guð minn, þínir vegir eru heilagir. Hvar skyldi aðra eins að finna?
77:14
OLO Þú ert Guð undra og tákna. Stórvirki þín blasa við augum.
77:15
OLO Með þinni voldugu hendi bjargaðir þú sonum Jakobs og Jósefs.
77:16
OLO Þegar Rauðahafið sá þig, ókyrrðist það! Jafnvel djúpið skalf af ótta!
77:17
OLO Það varð skýfall og þrumur bergmáluðu um himininn. Elding leiftraði.
77:18
OLO Þrumurnar tjáðu reiði þína og eldingarnar lýstu upp jörðina!
77:19
OLO Þú lagðir veg gegnum hafið – veg sem enginn þekkti áður!
77:20
OLO Þú leiddir fólk þitt þessa leið eins og fjárhóp, undir leiðsögn Móse og Arons.