Псалми 35 в різних перекладах

Оберіть переклади для порівняння

Натисніть на переклад, щоб додати його до списку; колонки йдуть у порядку списку.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Українська

Русский

Čeština

Беларуская

English

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Српски / Srpski

Hrvatski

Svenska

Magyar

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Tiếng Việt

ไทย

한국어

हिन्दी

Русский

  • Десницкий
  • Кассиан

English

  • African International (Paraphrase, American)
  • African International (Paraphrase, British)
  • African International (Literal, American)
  • African International (Literal, British)
  • Majority Text
  • Targum Onkelos (Etheridge)
  • Text-Critical English

Deutsch

  • Byzantinischer Text

Polski

  • Słowo Życia

Español

  • Biblia Libre (Nuevo Testamento)

Português

  • Tradução para Tradutores

Türkçe

  • Temel Tercüme

中文

  • 易读圣经

Ἀρχαία Ἑλληνική

  • Textus Receptus
  • Patriarchal 1904
  • Solid Rock
  • Family 35
  • Text-Critical Greek

Hrvatski

  • Knjiga o Kristu

Čeština

  • Slovo na cestu

Eesti

  • Kaasaegne eesti

Magyar

  • Élet, igazság és világosság

Slovenčina

  • Nádej pre každého

Suomi

  • Elävä uutinen

Norsk bokmål

  • En Levende Bok

Nederlands

  • Gods Boek

Български

  • Съвременен

Bahasa Indonesia

  • Mudah Dibaca
Lifandi Orð
35:1
OLO Drottinn, farðu gegn þeim sem ásækja mig. Berst þú við þá sem berjast gegn mér.
35:2
OLO Klæddu þig brynju, taktu fram skjöld og verndaðu mig.
35:3
OLO Lyftu spjóti mér til varnar, því að óvinir mínir nálgast. Segðu við mig: „Ég bjarga þér!“
35:4
OLO Láttu þá verða til skammar sem ofsækja mig. Snúðu þeim frá og ruglaðu þá í ríminu!
35:5
OLO Feyktu þeim burt eins og laufum í vindi. Engill þinn varpi þeim um koll.
35:6
OLO Gerðu veg þeirra myrkan og hálan er engill þinn eltir þá.
35:7
OLO Því að þótt ég gerði þeim ekkert illt, lögðu þeir fyrir mig gildru og grófu mér gröf.
35:8
OLO Láttu eyðingu koma yfir þá þegar þeir eiga þess síst von. Þeir falli á eigin bragði og tortímist.
35:9
OLO En ég mun fagna í Drottni. Hann mun frelsa mig!
35:10
OLO Ég lofa hann af öllu hjarta. Hver er vörn lítilmagnans nema hann? Hver annar en hann verndar hinn veika og þurfandi gegn ofbeldismönnunum sem ræna og rupla.
35:11
OLO Slíkir menn eru ljúgvottar. Þeir ásaka mig um hluti sem ég hef aldrei heyrt.
35:12
OLO Ég gerði þeim gott eitt, en þeir launa mér með illu. Ég er að dauða kominn.
35:13
OLO Þegar þeir lágu sjúkir klæddist ég sorgarbúningi og var dapur. Ég fastaði – neitaði mér um mat – og bað í einlægni fyrir heilsu þeirra.
35:14
OLO Ég var harmandi, eins og móðir mín, vinur eða bróðir væru sjúk og að dauða komin.
35:15
OLO En nú gleðjast þeir yfir óförum mínum. Þeir koma saman til að baktala mig – jafnvel ókunnugir og útlendingar eru í þeirra hópi.
35:16
OLO Þeir ala á illsku, formæla mér og hæða mig.
35:17
OLO Drottinn, hve lengi ætlar þú að horfa á aðgerðalaus? Gríptu inn í og bjargaðu mér, því að ég er einmana og þessir vargar bíða færis.
35:18
OLO Frelsaðu mig og þá mun ég þakka þér í áheyrn alls safnaðarins, vegsama þig meðal fjölda fólks.
35:19
OLO Láttu þá ekki fá sigur sem ráðast gegn mér án minnsta tilefnis. Láttu mig ekki falla, því það mundi gleðja þá mjög.
35:20
OLO Þeir tala hvorki um frið, né það að gera gott, nei, heldur brugga þeir saklausum mönnum launráð.
35:21
OLO Þeir hafa hátt og segja mig beita ranglæti. „Já!“ segja þeir, „við sáum það með eigin augum!“
35:22
OLO En Drottinn þekkir málið betur en nokkur annar. Gríptu inn í! Skildu mig ekki eftir einan og yfirgefinn!
35:23
OLO Stígðu fram, Drottinn, Guð minn! Láttu mig ná rétti mínum.
35:24
OLO Þú ert réttlátur og þekkir málið. Lýstu yfir sakleysi mínu. Láttu ekki óvini mína hlakka yfir ógæfu minni.
35:25
OLO Láttu þá ekki segja: „Gott! Það fór eins og við óskuðum! Loksins tókst okkur að gera út af við hann!“
35:26
OLO Láttu þá blygðast sín. Láttu þá sem sýna mér hroka og fagna yfir óförum mínum, sjálfa þola skömm og svívirðing.
35:27
OLO Láttu þá sem óska mér blessunar sjá góða daga. Þeir hrópi: „Mikill er Drottinn sem gerir vel við þjón sinn!“
35:28
OLO Ég vil segja öllum frá réttlæti Drottins og lofa hann liðlangan daginn.