Римлян 8 в різних перекладах

Оберіть переклади для порівняння

Натисніть на переклад, щоб додати його до списку; колонки йдуть у порядку списку.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Українська

Русский

Čeština

Беларуская

English

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

ไทย

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)

Deutsch

  • Byzantinischer Text
Lifandi Orð
8:1
OLO Þeir sem tilheyra Jesú Kristi verða ekki fordæmdir.
8:2
OLO Kraftur heilags anda, sem fæst af trúnni á Jesú Krist, hefur leyst mig út úr þessum vítahring syndar og dauða.
8:3
OLO Við frelsumst ekki úr klóm syndarinnar með því að kunna boðorðin, því að við getum ekki haldið þau. Guð opnaði hins vegar aðra leið til að frelsa okkur. Hann sendi okkur einkason sinn sem varð maður eins og við, að öðru leyti en því að við erum syndug. Sonurinn braut á bak aftur það vald sem syndin hafði yfir okkur, með því að deyja fyrir syndir okkar.
8:4
OLO Þess vegna getum við nú hlýtt lögum Guðs, það er að segja, ef við förum eftir því sem heilagur andi segir, í stað þess að hlýðnast eigingirni okkar.
8:5
OLO Þeir sem láta eigin vilja ráða, stjórnast af lægstu hvötum sínum og lifa aðeins til að þóknast sjálfum sér, en þeir sem hlýða heilögum anda gera það sem Guði er þóknanlegt.
8:6
OLO Heilagur andi veitir líf og frið, en ef við hlýðum eigingirninni þá endar slíkt með dauða,
8:7
OLO því að hún er í andstöðu við Guð. Hún hefur ekki hlýtt lögum Guðs hingað til og mun aldrei gera.
8:8
OLO Þetta er ástæða þess að þeir sem enn láta eigingirnina, sjálfselskuna og syndina móta líf sitt, geta aldrei þóknast Guði.
8:9
OLO En þannig er ekki ástatt um ykkur, því að þið hljótið að láta stjórnast af nýja hugarfarinu ykkar, svo framarlega sem heilagur andi býr í ykkur. (Minnist þess að sá sem ekki á anda Krists er alls ekki kristinn.)
8:10
OLO Syndin veldur því að líkamar ykkar munu deyja þótt þið séuð kristin, en andi ykkar mun hins vegar lifa, því að Kristur hefur lífgað hann.
8:11
OLO Ef nú andi Guðs, sem reisti Jesú upp frá dauðum, býr í ykkur, þá mun Guð síðar reisa líkama ykkar upp frá dauðum með krafti anda síns.
8:12
OLO Kæru systkini í Kristi, af þessu sjáið þið að þið hafið alls engar skyldur við gamla synduga eðlið ykkar og þurfið ekki að hlýðnast því.
8:13
OLO Ef þið haldið því áfram þá glatist þið, en ef þið deyðið það og allar afleiðingar þess með krafti heilags anda, þá munuð þið lifa,
8:14
OLO því að allir þeir, sem láta anda Guðs leiða sig, eru Guðs börn.
8:15
OLO Við eigum því ekki að líkjast hræddum og niðurlútum þrælum, heldur eigum við að hegða okkur eins og einkabörn Guðs. Hann hefur tekið okkur inn í fjölskyldu sína og leyft okkur að kalla sig föður, já, pabba!
8:16
OLO Heilagur andi segir okkur að við séum Guðs börn og það erum við!
8:17
OLO Og fyrst við erum börnin hans, erum við líka erfingjar hans og fáum að njóta auðæfa hans með honum, því að allt sem Guð gefur syni sínum Jesú, eigum við með honum. En ef við eigum að fá hlutdeild í dýrð hans, þá verðum við einnig að vera reiðubúin að þjást með honum.
8:18
OLO Þjáningar þessa lífs eru þó ekkert í samanburði við þá miklu dýrð sem hann mun gefa okkur síðar.
8:19
OLO Öll sköpunin bíður þess dags, þolinmóð og vongóð, er Guð vekur börnin sín.
8:20
OLO [8:20–21] Þá mun synd, dauði og rotnun – allt það sem með leyfi Guðs hefur spillt sköpuninni, gegn hennar eigin ósk – það mun allt hverfa og heimurinn umhverfis okkur mun gleðjast með okkur, börnum Guðs, er við losnum að fullu og öllu úr viðjum syndarinnar.
8:21
OLO
8:22
OLO Okkur er ljóst að náttúran – bæði dýrin og jurtirnar – er ofurseld sjúkdómum og dauða meðan hún bíður þessa stórkostlega atburðar.
8:23
OLO En náttúran er ekki ein um að þjást. Við, sem eigum heilagan anda, forsmekkinn að dýrð framtíðarinnar, þráum einnig að losna frá kvöl og þjáningum. Ó, hve við þráum þann dag er Guð veitir okkur hinn fullkomna barnarétt og um leið nýju líkamana sem hann hefur lofað okkur – líkama sem hvorki veikjast né deyja.
8:24
OLO Þessi von okkar hefur frelsað okkur. Að trúa er hið sama og að vænta einhvers sem enn er ekki orðið, en sá sem á, þarf ekki að vona og trúa að hann muni fá.
8:25
OLO Að bíða í von eftir því sem Guð mun gefa, styrkir trú okkar og þolinmæði.
8:26
OLO Eins er með trúna og heilagan anda. Heilagur andi hjálpar okkur að biðja og leysa dagleg vandamál. Oft vitum við ekki hvers við eigum að biðja eða hvaða orð við eigum að nota, en þá kemur heilagur andi okkur til hjálpar og gefur okkur réttu orðin í bænina.
8:27
OLO Faðirinn, sem þekkir hjörtu allra, veit auðvitað hvað heilagur andi á við þegar hann biður fyrir okkur samkvæmt vilja Guðs,
8:28
OLO og við vitum að allt sem gerist í lífi okkar verður til góðs, ef við elskum Guð og lifum í samræmi við vilja hans.
8:29
OLO Guð ákvað í upphafi að þeir sem til hans kæmu – hann hefur alltaf vitað hverjir það yrðu – skyldu líkjast syni hans, svo að sonur hans yrði hinn fyrsti í hópi margra systkina.
8:30
OLO Þegar hann hafði valið okkur, þá kallaði hann okkur til sín og þegar við komum, þá sýknaði hann okkur. Síðan gaf hann okkur kærleika Krists og kom öllu í sátt á milli okkar og sín og hét okkur dýrð sinni.
8:31
OLO Hvað getum við sagt við slíkri gæfu? Fyrst Guð er með okkur, hver megnar þá að standa gegn okkur?
8:32
OLO Guð hlífði ekki sínum eigin syni, heldur lagði hann í sölurnar fyrir okkur öll, og fyrst svo er, skyldi hann þá ekki gefa okkur allt annað að auki? Jú, svo sannarlega!
8:33
OLO Hver dirfist að ákæra okkur fyrst Guð hefur valið okkur til að vera börnin sín? Hann fyrirgaf okkur og kom okkur í sátt við sig.
8:34
OLO Hver mun þá geta fordæmt okkur? Kristur? Nei! Því að hann dó fyrir okkur og situr nú í hásæti dýrðarinnar á himnum, næstur Guði, og biður fyrir okkur.
8:35
OLO Getur þá nokkuð útilokað okkur frá kærleika Krists? Hvað með erfiðleika og ógæfu ýmiss konar? Eru ekki ofsóknir og niðurlæging, sem við verðum fyrir, sönnun þess að hann hafi ekki lengur velþóknun á okkur? Eða hvað um hungur, fátækt og lífshættu? Gefur slíkt ekki til kynna að Guð hafi yfirgefið okkur?
8:36
OLO Nei! Gamla testamentið segir að sé það vilji Guðs, verðum við að vera reiðubúin að horfast í augu við dauðann hvenær sem er – já, vera eins og lömb sem bíða slátrunar.
8:37
OLO En hvað sem þessu líður þá erum við sigursæl í Kristi, honum sem elskaði okkur svo heitt að hann dó fyrir okkur.
8:38
OLO Ég er sannfærður um að ekkert mun geta gert okkur viðskila við kærleika Krists, hvorki dauði né líf, né nokkur önnur öfl á himni eða jörðu. Atburðir líðandi stundar, áhyggjuefni morgundagsins,
8:39
OLO hamfarir náttúrunnar – ekkert af þessu mun nokkru sinni megna að gera okkur viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara.