Mrk MarkúsMác, kaflichương MarkúsarguðspjallMác, kaflichương 2

Bản dịch So sánh

Nokkrum dögum síðar sneri Jesús aftur til Kapernaum og fyrr en varði vissu bæjarbúar að hann var kominn heim.Mat 9:1

Á skammri stundu var húsið sem hann dvaldist í orðið svo þéttsetið að fleiri komust ekki þangað inn og meira að segja þröng úti fyrir. Þarna flutti hann orð Guðs.

Þá komu þar menn sem báru lamaðan mann á börum á milli sín. Mat 9:2; Luk 5:18Þeir komust ekki að Jesú vegna mannfjöldans og rufu því gat á leirþakið og létu börurnar með veika manninum síga niður til Jesú.

Þegar Jesús sá trú þeirra – hversu sannfærðir þeir voru um að hann gæti hjálpað – sagði hann við lamaða manninn: „Sonur minn, syndir þínar eru fyrirgefnar!“

Nokkrir trúarleiðtogar þjóðarinnar urðu vitni að þessum atburði og hugsuðu með sér: „Hvað er að heyra? Þetta er guðlast! Hann heldur þó ekki að hann sé Guð? Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?“

Jesús las hugsanir þeirra og sagði: „Hvers vegna hugsið þið svona? Jhn 2:24; Jhn 6:64Er nokkuð erfiðara að fyrirgefa syndir hans en að lækna hann? Mat 9:5; Luk 5:23Ég skal sanna ykkur að ég, maðurinn frá himnum, hef fyrirgefið honum syndir hans.“ Síðan sneri hann sér að lamaða manninum og sagði: „Taktu börurnar og farðu heim. Þú ert heilbrigður.“

Maðurinn spratt á fætur, tók börurnar og ruddi sér leið gegnum mannfjöldann, sem var agndofa af undrun. Og fólkið tók að lofa Guð og hrópa: „Við höfum aldrei séð neitt þessu líkt.“

Eftir þetta gekk Jesús niður að vatninu og talaði við mannfjöldann sem þar safnaðist að honum. Á leið sinni fram hjá skattstofunni sá hann Leví Alfeusson sitja þar. „Komdu og vertu lærisveinn minn.“ sagði Jesús við hann. Þá stóð Leví upp og fylgdi honum.Mat 9:9; Luk 5:27

Um kvöldið bauð Leví vinnufélögum sínum á skattstofunni og mörgum sem illt orð fór af, til kvöldverðar, svo þeir gætu hitt Jesú og lærisveina hans. (Í þeim fjölda sem fylgdi Jesú höfðu ekki heldur allir gott orð á sér.) Þegar trúarleiðtogar fólksins sáu hann matast með þessum mönnum, sögðu þeir við lærisveina hans: „Hvernig í ósköpunum getur hann fengið af sér að borða með þvílíkum ruslaralýð?“

Þegar Jesús heyrði þetta, sagði hann við þá: „Veikir þurfa lækni en heilbrigðir ekki! Ég kom ekki til að hvetja hina „góðu“ til að iðrast synda sinna, heldur þá sem vondir eru.“Mat 9:13; Luk 5:32; 1Ti 1:15

Mannssonurinn

Nú stóð yfir fasta hjá lærisveinum Jóhannesar og faríseunum (en þá neyttu þeir ekki matar af trúarástæðum). Menn komu þá til Jesú og sögðu við hann: „Af hverju fasta þínir lærisveinar ekki eins og hinir?“Mat 9:14; Luk 5:33

Jesús svaraði og sagði: „Hvað gera vinir brúðgumans? Hafna þeir kræsingunum í brúðkaupsveislu hans, og eiga þeir að vera daprir í bragði meðan hann er hjá þeim? Nei!

En sá dagur kemur að hann verður tekinn frá þeim og þá munu þeir fasta. Hver bætir gamla flík með bót sem á eftir að hlaupa? Hvað mundi þá gerast? Bótin mundi hlaupa í fyrsta þvotti og rifna frá og gatið verða ennþá stærra en áður. Mat 9:16; Luk 5:36Þið vitið að ekki má setja nýtt vín í gamla skinnbelgi, þá rifna þeir, vínið fer allt niður og belgirnir eyðileggjast. Nýtt vín er sett á nýja belgi.“

Seinna – á helgidegi var Jesús ásamt lærisveinum sínum á gangi yfir akur. Lærisveinarnir brutu þá öx af stráunum og átu úr þeim kornið.Mat 12:1; Luk 6:1

Þá sögðu farísearnir við Jesú: „Þetta mega þeir ekki gera! Það er lagabrot að uppskera korn á helgidegi.“

En hann sagði við þá: „Hafið þið aldrei heyrt hvað Davíð gerði þegar hann og menn hans hungraði? Þeir fóru inn í helgidóm Guðs – það var þegar Abíatar var æðsti prestur – og átu brauðið sem ætlað var prestunum. Það var einnig lagabrot. Mat 12:4; Luk 6:4Helgidagurinn varð til mannsins vegna en ekki maðurinn vegna helgidagsins. Ég, Kristur, hef vald til að ákveða hvað menn mega gera á helgidögum.“