Psa SálmarnirThi thiên, sálmurthi thiên SálmarnirThi thiên, sálmurthi thiên 138

Bản dịch

Drottinn, ég þakka þér af öllu hjarta! Ég vil lofsyngja þér í áheyrn englanna á himnum. Psa 9:1Ég vil falla fram fyrir þínu heilaga musteri, þakka þér elsku þína og trúfesti, og loforð þín sem þú hefur innsiglað með þínu mikilfenglega nafni. Psa 116:1Þegar ég bið, þá heyrir þú bænir mínar, styrkir mig og hughreystir.

Konungar jarðarinnar skulu þakka þér, Drottinn, því að allir heyra þeir rödd þína. Psa 68:32Já, þeir skulu syngja um verk Drottins, því að mikil er dýrð hans. En þótt Drottinn sé mikill, þá lýtur hann að hinum lítilmótlegu, en hrokafullir halda sig fjarri. Psa 113:6Þótt ég sé umvafinn erfiðleikum, muntu sjá um að allt fari vel. Þú réttir fram hnefann gegn óvinum mínum. Kraftur þinn mun frelsa mig. Psa 37:24Drottinn mun leysa úr öllum mínum málum – því að Drottinn, miskunn þín varir að eilífu. Yfirgef mig ekki, því að ég er verk handa þinna.