Psa SálmarnirThi thiên, sálmurthi thiên SálmarnirThi thiên, sálmurthi thiên 14

Bản dịch

En sá heimskingi sem segir: „Guð er ekki til!“ Sá er líka bæði illur og spilltur og einskis góðs af honum að vænta.Psa 10:6; Psa 53:1

Drottinn horfir niður af himnum og virðir fyrir sér mennina, hvort einhver sé skynsamur og geri vilja hans. Psa 33:13Nei, það gerir enginn þeirra. Allir eru þeir viknir af leið, allir spilltir af synd. Enginn er raunverulega góður, ekki einn einasti! Rom 3:10Þeir kúga og kvelja þjóð mína og dettur ekki í hug að ákalla mig! Skyldu þeir ekki fá að kenna á því illgjörðamennirnir?

Þeir munu óttast þegar þeir sjá að Guð er með þeim sem elska hann. Hann er skjól hinna hrjáðu og hógværu þegar illgjörðamenn ofsækja þá. Ó, að lausnardagur þeirra væri nú þegar kominn! Að Guð kæmi frá bústað sínum á Síon til bjargar þjóð sinni. En sá gleðidagur þegar Drottinn frelsar Ísrael!Psa 53:6-7