Psa SálmarnirThi thiên, sálmurthi thiên SálmarnirThi thiên, sálmurthi thiên 81

Bản dịch So sánh

Guð er okkar styrkur! Syngið lofsöng og fagnið fyrir Guði Ísraels! Syngið lofsöng og berjið bumbur, sláið strengi hörpunnar og látið gígjurnar hljóma! Lúðurinn hvelli! Komið til fagnaðar þegar tunglið er fullt og fjölmennið á hátíðir Drottins. Þetta er regla í Ísrael; boðorð frá Guði Jakobs. Við höldum hátíð og minnumst sigurs Drottins á Egyptum þegar við vorum þrælar þar í landi. Ég heyrði ókunna rödd sem sagði: „Ég vil varpa af þér byrðinni, losa af þér ánauðarfjötrana.“ Og hann hélt áfram: „Þú hrópaðir í neyðinni og ég frelsaði þig. Ég svaraði þér úr þrumuskýi. Ég reyndi trú þína hjá Meríba, þar sem þorstinn var sár. Psa 50:7Hlustaðu nú á mig, þjóð mín, þegar ég áminni þig. Ísrael, ó, að þú vildir hlýða mér. Engum öðrum guðum mátt þú þjóna og ekki tilbiðja neina útlenda guði. Því að það var ég, Drottinn, Drottinn Guð þinn sem leiddi þig út úr Egyptalandi. Prófa þú mig einu sinni enn. Opnaðu munninn og sjáðu hvort ég muni ekki fylla hann. Þú munt vissulega fá hjá mér hverja þá blessun sem þú þarft! Nei, annars – þjóð mín vill ekki hlusta á mig. Ísrael kærir sig ekki um mig. Act 14:16Þess vegna leyfi ég þeim að ráfa í blindni á vegum þrjósku sinnar og lifa eftir sínum eigin girndum.

Aðeins ef þjóð mín vildi hlusta á mig! Ó, að Ísrael kysi nú að fylgja mér, ganga á mínum vegum! Þá mundi ég skjótlega brjóta óvini þeirra á bak aftur – reiða hnefann gegn kúgurum þeirra. Þá mundu hatursmenn Drottins skríða fyrir honum og ógæfa þeirra vara við. En ykkur mundi hann ala vel! Já, gefa ykkur hunang úr klettaskoru!“