Thi thiên 78 trong các bản dịch khác nhau

Chọn các bản dịch để so sánh

Chọn một bản dịch để thêm vào danh sách; các cột xếp theo thứ tự trong danh sách.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Tiếng Việt

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Српски / Srpski

Hrvatski

Svenska

Magyar

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

ไทย

한국어

हिन्दी

Русский

  • Десницкий
  • Кассиан

English

  • African International (Paraphrase, American)
  • African International (Paraphrase, British)
  • African International (Literal, American)
  • African International (Literal, British)
  • Majority Text
  • Targum Onkelos (Etheridge)
  • Text-Critical English

Deutsch

  • Byzantinischer Text

Polski

  • Słowo Życia

Español

  • Biblia Libre (Nuevo Testamento)

Português

  • Tradução para Tradutores

Türkçe

  • Temel Tercüme

中文

  • 易读圣经

Ἀρχαία Ἑλληνική

  • Textus Receptus
  • Patriarchal 1904
  • Solid Rock
  • Family 35
  • Text-Critical Greek

Hrvatski

  • Knjiga o Kristu

Čeština

  • Slovo na cestu

Eesti

  • Kaasaegne eesti

Magyar

  • Élet, igazság és világosság

Slovenčina

  • Nádej pre každého

Suomi

  • Elävä uutinen

Norsk bokmål

  • En Levende Bok

Nederlands

  • Gods Boek

Български

  • Съвременен

Bahasa Indonesia

  • Mudah Dibaca
Lifandi Orð
78:1
OLO Þjóð mín, hlustaðu á kenningu mína. Gefðu gaum að því sem ég hef að segja.
78:2
OLO [78:2–3] Nú ætla ég að rifja upp fyrir þér liðna atburði, frásagnir sem varðveist hafa frá kynslóð til kynslóðar.
78:3
OLO
78:4
OLO Ég birti ykkur sannleikann, svo að þið getið sagt börnum ykkar frá dásemdarverkum Drottins, öllum þeim undrum sem hann vann.
78:5
OLO Lögmál sitt gaf hann Ísrael og bauð forfeðrunum að kenna það börnum sínum
78:6
OLO sem síðan skyldu kenna það sínum afkomendum. Þannig skyldi lögmál hans berast frá einni kynslóðinni til annarrar.
78:7
OLO Því hefur sérhver kynslóð getað haldið lög Guðs, treyst honum og heyrt um hans dásemdarverk.
78:8
OLO Ný kynslóð skyldi ekki þurfa að fara að fordæmi feðra sinna sem voru þrjóskir, óhlýðnir og ótrúir og forhertu sig gegn Guði.
78:9
OLO Þótt íbúar Efraím væru alvopnaðir, þá flúðu þeir þegar að orustunni kom.
78:10
OLO Þannig rufu þeir sáttmálann við Guð og fóru sína eigin leið.
78:11
OLO [78:11–12] Þeir gleymdu máttarverkum Drottins, sem hann hafði fyrir þá gert og forfeður þeirra í Egyptalandi,
78:12
OLO
78:13
OLO þegar hann klauf hafið og leiddi þá yfir þurrum fótum. Vatnið stóð eins og veggur til beggja handa!
78:14
OLO Að degi til leiddi hann þá með skýi, en eldstólpa um nætur.
78:15
OLO Hann rauf gat á klettinn í eyðimörkinni. Vatnið streymdi fram og þeir svöluðu þorsta sínum.
78:16
OLO Já, það flæddi frá klettinum, líkast rennandi á!
78:17
OLO Samt héldu þeir fast við þrjósku sína og syndguðu gegn hinum hæsta Guði.
78:18
OLO Þeir kvörtuðu og kveinuðu og heimtuðu annað að borða en það sem Guð gaf þeim.
78:19
OLO [78:19–20] Þeir ásökuðu jafnvel sjálfan Guð og sögðu: „Hann gaf okkur vatn, en hvers vegna fáum við ekki brauð eða kjöt?!“
78:20
OLO
78:21
OLO Drottinn hlustaði og honum rann í skap, reiði hans upptendraðist gegn Ísrael.
78:22
OLO Enda treystu þeir honum ekki, né trúðu forsjá hans.
78:23
OLO Jafnvel þótt hann lyki upp himninum – eins og glugga! –
78:24
OLO og léti manna rigna niður.
78:25
OLO Já, þeir átu englabrauð! – og urðu mettir.
78:26
OLO Þá lét hann austanvind blása og stýrði vestanvindinum með krafti sínum.
78:27
OLO Og viti menn, fuglum rigndi af himni, – þeir voru eins og sandur á sjávarströnd!
78:28
OLO Af hans völdum féllu þeir til jarðar um allar tjaldbúðirnar.
78:29
OLO Og fólkið át nægju sína. Hann mettaði hungur þeirra.
78:30
OLO En varla höfðu þeir lokið matnum – fæðan var enn í munni þeirra,
78:31
OLO þá reiddist Drottinn þeim og lagði að velli æskumenn Ísraels.
78:32
OLO En þeir sáu sig ekki um hönd, en héldu áfram að syndga og vildu ekki trúa kraftaverkum Drottins.
78:33
OLO Þess vegna stytti hann ævi þeirra og sendi þeim miklar hörmungar.
78:34
OLO En þegar neyðin var stærst, tóku þeir að leita Guðs. Þeir iðruðust og snéru sér til hans.
78:35
OLO Þeir viðurkenndu að Guð er eini grundvöllur lífsins – að hinn hæsti Guð væri frelsari þeirra.
78:36
OLO En því miður fylgdu þeir honum aðeins í orði kveðnu, en ekki af heilum hug,
78:37
OLO hjarta þeirra var langt frá honum. Þeir stóðu ekki við orð sín.
78:38
OLO Samt var hann þeim miskunnsamur, fyrirgaf syndir þeirra og tortímdi þeim ekki. Margoft hélt hann aftur af reiði sinni.
78:39
OLO Hann minntist þess að þeir voru dauðlegir menn, eins og andblær sem kemur og fer.
78:40
OLO Já, oft risu þeir gegn Guði í eyðimörkinni og ollu honum vonbrigðum.
78:41
OLO Aftur og aftur sneru þeir við honum baki og freistuðu hans.
78:42
OLO Þeir gleymdu krafti hans og kærleika og hvernig hann hafði frelsað þá frá óvinum þeirra.
78:43
OLO Þeir gleymdu plágunum sem hann sendi Egyptum í Sóan
78:44
OLO þegar hann breytti fljótum þeirra í blóð, svo að enginn gat drukkið.
78:45
OLO Eða þegar hann fyllti landið af flugum og froskum!
78:46
OLO Lirfurnar spilltu uppskerunni og engispretturnar átu allt, hvort tveggja var frá honum komið.
78:47
OLO Hann eyddi vínviði þeirra með hagléli og mórberjatrjánum með frosti.
78:48
OLO Búpeningurinn hrundi niður í haganum, haglið rotaði hann og sauðirnir drápust í eldingum.
78:49
OLO Hann úthellti reiði sinni yfir þá, sendi þeim ógn og skelfingu. Hann leysti út sendiboða ógæfunnar – engla sem létu þá kenna á því!
78:50
OLO Hann gaf reiðinni lausan tauminn. Og ekki hlífði hann Egyptunum. Þeir fengu vænan skerf af plágum og sjúkdómum.
78:51
OLO Þá deyddi hann frumburði Egypta, efnilegan ungviðinn, sem vonirnar voru bundnar við.
78:52
OLO Sinn eigin lýð leiddi hann styrkri hendi gegnum eyðimörkina.
78:53
OLO Hann var skjól þeirra og vörn. Þeir þurftu ekkert að óttast, en hafið gleypti óvini þeirra.
78:54
OLO Hann greiddi för þeirra til fyrirheitna landsins, til hæðanna sem hann hafði skapað.
78:55
OLO Íbúum landsins stökkti hann á flótta en gaf þar ættkvíslum Ísraels erfðahlut og skjól.
78:56
OLO En þótt þeir nytu gæsku Guðs, risu þeir gegn hinum hæsta og fyrirlitu boðorð hans.
78:57
OLO Þeir sneru af leið og rufu trúnað rétt eins og feður þeirra. Eins og bogin ör misstu þeir marksins sem Guð hafði sett þeim.
78:58
OLO Þeir tóku aðra guði, reistu þeim ölturu og egndu Drottin á móti sér.
78:59
OLO Guð sá verk þeirra og reiddist – fékk viðbjóð á Ísrael.
78:60
OLO Hann yfirgaf helgidóm sinn í Síló, bústað sinn meðal manna.
78:61
OLO Örk sína lét hann falla í hendur óvinanna og vegsemd hans var óvirt af heiðingjum.
78:62
OLO Hann reiddist lýð sínum og lét hann falla fyrir sverði óvinanna.
78:63
OLO Æskumenn Ísraels fórust í eldi og ungu stúlkurnar upplifðu ekki sinn brúðkaupsdag.
78:64
OLO Prestunum var slátrað og ekkjur þeirra dóu áður en þær gátu harmað þá.
78:65
OLO Þá var sem Drottinn vaknaði af svefni, eins og hetja sem rís upp úr vímu,
78:66
OLO og hann gaf þeim vænt spark í bakhlutann og sendi þá burt með skömm, sömu leið og þeir komu.
78:67
OLO Hann hafnaði fjölskyldu Jósefs, ætt Efraíms,
78:68
OLO en kaus Júdaættkvísl og Síonfjall, sem hann elskar.
78:69
OLO Þar reisti hann musteri sitt – voldugt og traust rétt eins og himin og jörð.
78:70
OLO Hann kaus Davíð sem þjón sinn, tók hann frá sauðunum,
78:71
OLO úr smalamennskunni, til að verða leiðtogi og hirðir þjóðar sinnar. Og hann gætti hennar af öryggi og með hreinu hjarta.