OLOFyrri frásaga mín var um allt sem Jesús gerði og kenndi.
1:2
OLOHvernig hann sneri aftur til himna, eftir að hafa flutt postulunum, sem hann valdi, sérstök fyrirmæli frá heilögum anda.
1:3
OLONæstu fjörutíu daga eftir krossfestinguna birtist hann þeim oft og sannaði að hann væri raunverulega lifandi, og talaði við þá um guðsríki.
1:4
OLOEitt sinn, er þeir voru saman komnir, sagði hann þeim að fara ekki burt frá Jerúsalem fyrr en heilagur andi hefði komið yfir þá, samkvæmt loforði föðurins, en um það hafði hann rætt við þá áður.
1:5
OLOHann minnti þá á að Jóhannes hefði skírt með vatni og bætti síðan við „en eftir nokkra daga verðið þið skírðir með heilögum anda.“
1:6
OLOSeinna birtist hann þeim aftur og þá spurðu þeir hann: „Drottinn, ætlarðu að frelsa Ísrael núna (undan valdi Rómverja) og endurreisa sjálfstæði þjóðar okkar?“
1:7
OLO„Faðirinn einn ákveður hvenær það verður,“ svaraði hann, „og ykkur er ekki ætlað að vita það fyrir.
1:8
OLOEn þegar heilagur andi kemur yfir ykkur, þá munuð þið fá djörfung og kraft til að vitna um dauða minn og upprisu fyrir íbúum Jerúsalem, Júdeu, Samaríu – já, öllum heiminum.“
1:9
OLOOg Jesús hafði ekki fyrr lokið þessum orðum sínum en hann var hafinn frá jörðu og hvarf í ský, en þeir stóðu einir eftir og störðu á eftir honum.
1:10
OLOEn er þeir störðu til himins og reyndu að koma auga á hann, stóðu skyndilega hjá þeim tveir menn í hvítum klæðum.
1:11
OLOÞeir sögðu: „Hvers vegna standið þið hér og starið til himins? Jesús er farinn til himna! En dag einn mun hann koma aftur, og þá á sama hátt og hann fór.“
1:12
OLOEftir þennan atburð, sem varð á Olíufjallinu, sneru lærisveinarnir til Jerúsalem, sem var spölkorn þaðan.
1:13
OLO[1:13–14]Er þangað kom fóru þeir í loftstofuna, þar sem þeir héldu til. Lærisveinarnir voru þessir: Pétur, Jóhannes og Jakob, Andrés, Filippus, Tómas, Bartólómeus, Matteus, Jakob Alfeusson, Símon (kallaður „hinn róttæki“) og Júdas Jakobsson. Bræður Jesú voru þarna einnig ásamt nokkrum konum, þar á meðal móður Jesú.
1:14
OLO
1:15
OLOÞau voru öll samhuga og staðföst í bæninni. Dag einn, er þarna voru saman komin um 120 manns, stóð Pétur upp og ávarpaði viðstadda þessum orðum:
1:16
OLO„Það hlaut óhjákvæmilega að rætast sem Biblían segir um Júdas, sem sveik Jesú, og olli því að múgurinn handtók hann. Þessu spáði Davíð konungur fyrir innblástur heilags anda.
1:17
OLOJúdas var í okkar hópi og honum var falin sama þjónusta og okkur.
1:18
OLOÞessi maður keypti akur fyrir féð, sem hann fékk fyrir svikin, og þar steyptist hann til jarðar, svo að kviður hans rifnaði og innyflin féllu út.
1:19
OLOÞetta varð kunnugt um alla Jerúsalem og fólkið kallaði staðinn „blóðakur“.
1:20
OLOSpádómur Davíðs konungs í Sálmunum segir svo: „Heimili hans fari í eyði og þar skal enginn búa.“ Einnig: „Öðrum skal falið að vinna hans verk.“
1:21
OLO[1:21–22]Af þessum sökum verðum við að velja einhvern annan í stað Júdasar, til að vera vitni ásamt okkur um upprisu Jesú. Við skulum velja einhvern, sem hefur verið með okkur alla tíð, frá því við kynntumst Drottni fyrst – eða frá þeirri stundu er Jóhannes skírði hann og til þess dags er hann var uppnuminn frá okkur til himna.“
1:22
OLO
1:23
OLOÁheyrendur tilnefndu tvo menn: Jósef Jústus (líka kallaður Barsabbas) og Mattías.
1:24
OLO[1:24–25]Síðan báðu þeir Guð að rétti maðurinn yrði valinn. „Ó, Drottinn,“ sögðu þeir, „þú þekkir hjörtu allra. Sýndu okkur, hvorn þessara manna þú hefur valið til postula í stað Júdasar, svikarans, sem nú er á sínum eigin stað.“ Þá vörpuðu þeir hlutkesti og kom upp hlutur Mattíasar. Hann var þar með valinn postuli ásamt hinum ellefu.
Вашы пераклады — набор апошняга параўнання, якое вы адкрылі кнопкай «Параўнаць» або запомнілі; пакуль набору няма, ім становіцца першае параўнанне, адкрытае наўпрост — з закладкі або па знешняй спасылцы. Калі ў наборы не менш за два пераклады і ва ўсіх іх ёсць гэта месца, параўнанне адкрываецца без формы выбару.
Адзначце зорачкай пераклады, якія хочаце бачыць у абраным.
Шрыфт
Памер тэксту
Спачатку было Слова, і Слова было ў Бога, і Слова было Бог
Плэеры з'яўляюцца без націску і самі не запускаюцца; старонка з відэа адразу звяртаецца да youtube.com. Пакуль налада ўключаная, відэа загружаецца з YouTube.
Адкуль загружаць відэа
Калі YouTube не адказвае, відэа загрузіцца з сервера сайта, калі там ёсць копія.
Скід налад
Мы скінем усе налады да прадвызначаных значэнняў. Вы ўпэўнены?