Лукаша 20 у розных перакладах

Выберыце пераклады для параўнання

Націсніце на пераклад, каб дадаць яго ў спіс; калонкі ідуць у парадку спісу.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Беларуская

Русский

Čeština

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

ไทย

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)
Lifandi Orð
20:1
OLO Dag nokkurn var Jesús að kenna og predika í musterinu. Þá lögðu æðstu prestarnir til atlögu við hann ásamt öðrum trúarleiðtogum og mönnum úr ráðinu.
20:2
OLO Þeir kröfðust þess að hann segði þeim með hvaða valdi hann hefði rekið musteriskaupmennina út.
20:3
OLO „Áður en ég svara ætla ég að spyrja ykkur annarrar spurningar,“ svaraði hann:
20:4
OLO „Var Jóhannes sendur af Guði eða starfaði hann aðeins í eigin mætti?“
20:5
OLO Þeir ráðguðust um þetta. „Ef við segjum að boðskapur hans hafi verið frá himnum, þá erum við fallnir í gildru, því að þá spyr hann: „Hvers vegna trúðuð þið honum þá ekki?“
20:6
OLO Ef við segjum hins vegar að Jóhannes hafi ekki verið sendur af Guði, þá ræðst múgurinn á okkur, því allir eru vissir um að hann hafi verið spámaður.“
20:7
OLO Að lokum svöruðu þeir: „Við vitum það ekki.“
20:8
OLO „Þá mun ég ekki heldur svara spurningu ykkar,“ sagði Jesús.
20:9
OLO Jesús sneri sér aftur að fólkinu og sagði því eftirfarandi sögu: „Maður plantaði víngarð, leigði hann nokkrum bændum og fór síðan til útlanda, þar sem hann bjó í nokkur ár.
20:10
OLO Þegar uppskerutíminn kom, sendi hann einn af mönnum sínum til búgarðsins til að sækja sinn hluta uppskerunnar. En leigjendurnir börðu hann og sendu hann tómhentan til baka.
20:11
OLO Þá sendi hann annan, en sama sagan endurtók sig: Hann var barinn og auðmýktur og sendur allslaus heim.
20:12
OLO Sá þriðji var einnig særður og enn fór á sömu leið. Honum var líka misþyrmt og hann rekinn í burtu.
20:13
OLO „Hvað á ég að gera“ sagði eigandi víngarðsins við sjálfan sig. „Já, nú veit ég það! Ég sendi son minn, sem ég elska, þeir munu áreiðanlega sýna honum virðingu.“
20:14
OLO En þegar leigjendurnir sáu son hans, sögðu þeir: „Nú er tækifærið. Þessi náungi á að erfa allt landið eftir föður sinn. Komum! Drepum hann, og þá eigum við þetta allt.“
20:15
OLO Þeir drógu hann út fyrir víngarðinn og drápu hann. Hvað haldið þið nú að eigandinn hafi gert?
20:16
OLO Það skal ég segja ykkur. Hann mun koma og drepa þá alla og leigja öðrum víngarðinn.“ „Annað eins og þetta getur aldrei gerst,“ mótmæltu áheyrendur.
20:17
OLO Jesús horfði á þá og sagði: „Hvað á þá Biblían við þegar hún segir: „Steinninn, sem smiðirnir höfnuðu, var gerður að hornsteini.“
20:18
OLO Og hann bætti við: „Hver sá sem hrasar um þann stein, mun limlestast og þeir sem undir honum verða, munu sundurkremjast.“
20:19
OLO Nú vildu æðstu prestarnir og trúarleiðtogarnir handtaka hann á stundinni, því að þeir skildu að sagan um víngarðsmennina átti við þá. Þeir voru einmitt þessir forhertu leigjendur í sögunni. En þeir óttuðust að fólkið stofnaði til óeirða ef þeir tækju hann. Þeir reyndu því að fá hann til að segja eitthvað sem hægt væri að ákæra hann fyrir til rómverska landstjórans, og fá hann handtekinn.
20:20
OLO Með þetta í huga sendu þeir til hans njósnara sem þóttust sakleysið uppmálað.
20:21
OLO Þeir sögðu við Jesú: „Herra, við vitum að þú ert heiðarlegur kennari. Þú segir alltaf sannleikann og veitir fræðslu um Guð, en hopar ekki fyrir andstæðingum þínum.
20:22
OLO Segðu okkur nú eitt – er rétt að greiða rómverska keisaranum skatt?“
20:23
OLO Jesús sá við bragðinu og svaraði:
20:24
OLO „Sýnið mér mynt. Hvers mynd og nafn er á henni?“ „Rómverska keisarans,“ svöruðu þeir.
20:25
OLO Þá sagði Jesús: „Greiðið keisaranum allt sem hans er – og gefið Guði það sem Guði ber.“
20:26
OLO Bragðið mistókst. Þeir undruðust svar hans og þögðu.
20:27
OLO [20:27–28] Þá komu til hans nokkrir saddúkear. Þeir trúa hvorki á líf eftir dauðann né upprisu. Þeir sögðu: „Lög Móse segja að deyi maður barnlaus, þá eigi bróðir hans að kvænast ekkjunni og börn þeirra skulu teljast börn látna mannsins og bera nafn hans.
20:28
OLO
20:29
OLO Við vitum um sjö bræður. Elsti bróðirinn kvæntist en dó barnlaus.
20:30
OLO Bróðir hans kvæntist þá ekkjunni og dó líka barnlaus.
20:31
OLO Þannig gekk þetta, koll af kolli, þar til allir sjö höfðu átt konuna, en dáið án þess að eiga börn.
20:32
OLO Að lokum dó konan líka.
20:33
OLO Nú spyrjum við: Hverjum þeirra verður hún gift í upprisunni, fyrst hún giftist þeim öllum?“
20:34
OLO [20:34–35] „Hjónabandið er fyrir þá sem lifa á jörðinni,“ svaraði Jesús, „en þeir sem verðskulda guðsríki ganga ekki í hjónaband við upprisuna,
20:35
OLO
20:36
OLO og þeir munu aldrei deyja. Þeir eru synir Guðs og eru eins og englarnir. Þeir hafa risið upp frá dauðum til nýs lífs.
20:37
OLO [20:37–38] Hvers vegna efist þið um upprisuna? Sjálfur Móse talar um hana. Hann lýsir því hvernig Guð birtist honum í brennandi runna. Hann talar um að Guð sé „Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs.“ Ef við segjum að Drottinn sé Guð einhvers manns, þá þýðir það að sá maður er lifandi en ekki dauður! Því Guð er sá sem gefur lífið.“
20:38
OLO
20:39
OLO „Þetta er vel sagt, herra,“ sögðu nokkrir lögvitringar sem þar stóðu.
20:40
OLO En fleiri urðu spurningarnar ekki, því þeir þorðu ekki að spyrja hann neins!
20:41
OLO Nú lagði Jesús spurningu fyrir þá og sagði: „Af hverju segið þið að Kristur sé afkomandi Davíðs konungs?
20:42
OLO [20:42–43] Davíð sagði í Sálmunum: „Guð sagði við minn Drottin: „Sittu mér til hægri handar, þar til ég legg óvini þína að fótum þér.“ “
20:43
OLO
20:44
OLO Hvernig getur Kristur verið hvort tveggja í senn, sonur Davíðs og Drottinn Davíðs?“
20:45
OLO Síðan sneri hann sér að lærisveinum sínum og sagði við þá, svo að fólkið heyrði:
20:46
OLO „Gætið ykkar á þessum fræðimönnum! Þeir njóta þess að ganga um göturnar í fínum fötum og láta fólk hneigja sig fyrir sér. Þeim finnst vænt um heiðurssætin í samkomuhúsum og hátíðarveislum.
20:47
OLO En meðan þeir þylja sínar löngu bænir með helgisvip, eru þeir jafnvel að hugsa upp ráð til að hafa fé af ekkjum. Guð mun því dæma þessa menn til hinnar þyngstu refsingar.“