Адкрыццё 4 у розных перакладах

Выберыце пераклады для параўнання

Націсніце на пераклад, каб дадаць яго ў спіс; калонкі ідуць у парадку спісу.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Беларуская

Русский

Čeština

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

ไทย

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)

Deutsch

  • Byzantinischer Text
Lifandi Orð
4:1
OLO Síðan leit ég upp og sá opnar dyr á himninum. Rödd sem ég hafði heyrt áður, sú sem líktist voldugum lúðurhljómi, talaði til mín og sagði: „Komdu hingað upp og ég mun sýna þér hvað framtíðin ber í skauti sér!“
4:2
OLO Á sömu stundu var ég staddur í andanum á himnum – hvílík dýrð! Ég sá hásæti og einhvern, sem sat í hásætinu.
4:3
OLO Mikilli geisladýrð stafaði frá honum, eins og frá glitrandi demanti eða skínandi rúbín, og regnbogi, sem glóði eins og smaragður, var yfir hásæti hans.
4:4
OLO Umhverfis hásætið voru önnur tuttugu og fjögur minni hásæti og í þeim sátu tuttugu og fjórir öldungar, sem allir voru hvítklæddir og með gullkórónur á höfði.
4:5
OLO Þrumur og eldingar gengu stöðugt út frá hásætinu og í þrumunum heyrðust raddir. Beint fyrir framan hásætið voru sjö logandi lampar og táknuðu þeir hinn sjöfalda anda Guðs.
4:6
OLO Þar fyrir framan var glerhaf, kristaltært. Hásætið hafði fjórar hliðar og við hverja hlið stóð lifandi vera, alsett augum.
4:7
OLO Fyrsta veran var eins og ljón, önnur líktist nauti, sú þriðja hafði mannsandlit og fjórða var eins og örn.
4:8
OLO Hver vera um sig hafði sex vængi og var miðhluti vængjanna þakinn augum. Verurnar endurtóku þessi orð hvíldarlaust, dag og nótt: „Heilagur, heilagur, heilagur er Drottinn Guð hinn alvaldi – sá sem var og er og kemur.“
4:9
OLO Verurnar gjalda honum, sem í hásætinu situr, dýrð, heiður og þökk, honum, sem lifir um aldir alda,
4:10
OLO og þá falla öldungarnir tuttugu og fjórir fram fyrir auglit hans og tilbiðja hann. Þeir varpa kórónum sínum fram fyrir hásætið og syngja:
4:11
OLO „Drottinn, þú ert verður þess að hljóta dýrð, heiður og mátt, því samkvæmt vilja þínum hefur þú skapað allt sem er.“