Psa SálmarnirMga Salmo, sálmursalmo SálmarnirAng Libro sa Mga Salmo, sálmursalmo 135

Mga hubad Itandi

Hallelúja! Lýður Drottins lofi hann í forgörðum musteris hans. Psa 113:1Lofið Drottin því að hann er góður, vegsamið hans dýrlega nafn. Psa 136:1Því að Drottinn hefur kosið Ísrael sér að eignarlýð.1Pe 2:9; Tit 2:14

Ég þekki mikilleik Drottins – að hann er öllum guðum æðri.

Það sem honum þóknast, það gerir hann á himni, á jörðu og einnig í hafdjúpunum! Psa 115:3Hann lætur skýin stíga upp af jörðinni og eldinguna leiftra svo að rigni; og vindana lætur hann blása úr forðabúrum sínum. Hann laust frumburði Egyptalands, bæði menn og dýr. Psa 78:51Undur og tákn gerði hann í augsýn Faraó og þjóna hans. Fjölmennar þjóðir lagði hann að velli, felldi volduga konunga – Síhon, Amoríta-konung og Óg, konung í Basan og konunga Kanaanslands og gaf Ísrael lönd þeirra til eilífrar eignar.

Ó, Drottinn, nafn þitt varir að eilífu! Frægð Drottins er kunn frá kynslóð til kynslóðar, því að hann réttir hlut þjóðar sinnar og miskunnar þjónum sínum.

Heiðingjarnir tilbiðja skurðgoð úr gulli og silfri, handaverk manna Psa 115:4– mállaus og sjónlaus skurðgoð, sem hvorki heyra né draga andann. Smiðir þeirra líkjast þeim og þeir sem tilbiðja þau.

Ísrael, lofa þú Drottin! Æðstuprestar Arons, vegsamið nafn hans, og einnig þið prestar af Levíætt. Já, lofið nafn hans, öll þið sem treystið honum og óttist hann. Þið íbúar Jerúsalem, lofið Drottin, hann sem býr í Jerúsalem! Hallelúja!Psa 50:2; Psa 110:2