2Th 2. Þessaloníkubréf, kafli Síðara bréf Páls til Þessaloníkumanna, kafli 2
Endurkoma Krists
Kæru vinir, látið engar sögusagnir, eins og þá að dagur Drottins sé þegar runninn upp, koma ykkur úr jafnvægi eða gera ykkur órótt. Ef þið heyrið um fólk sem séð hefur sýnir eða fengið einhver sérstök skilaboð frá Guði um þetta, eða þá fengið bréf sem álitin eru frá mér, þá trúið því ekki.