Heb Hebreabréfið, kafli Bréfið til Hebrea, kafli 5
Æðsti prestur Gyðinga er aðeins venjulegur maður, eins og hver annar, en hann er valinn til að tala máli þeirra við Guð. Hann ber gjafir þeirra fram fyrir Guð og einnig blóð dýra, sem fórnað er til að hylja syndir fólksins og hans sjálfs. Hann er maður og því getur hann tekið vægt á öðrum, jafnvel þótt þeir séu heimskir og fáfróðir, því að hann mætir sömu freistingunum og þeir og skilur því vandamál þeirra mæta vel.