Rom RómverjabréfiðŘímanům, kaflikapitola Bréf Páls til RómverjaList Římanům, kaflikapitola 2

Překlady Porovnat

Gyðingar jafn sekir og heiðingjar

Gyðingar, þið haldið að allt sé á hreinu milli ykkar og Guðs vegna þess að þið eruð Gyðingar og vegna þess að hann gaf ykkur lög sín. Þið gortið af því að vera í sérstöku uppáhaldi hjá Guði! Ekki neita ég því að þið þekkið vilja hans; þið þekkið mun á réttu og röngu og hafið vit á að velja hið rétta, því að ykkur hafa verið kennd lög Guðs frá blautu barnsbeini. Þið eruð svo vissir um leiðina til Guðs að þið gætuð jafnvel bent blindum manni á hana. Þið álítið ykkur vera leiðarljós sem leiðbeina þeim til Guðs, sem villst hafa í myrkrinu. Mat 15:14Þið teljið ykkur geta leiðbeint hinum lítilmótlegu og frætt börnin um verk Guðs, því að þið þekkið lög hans, vísdóm og sannleika.

Þið fræðið aðra um lög hans, en hvers vegna farið þið ekki sjálfir eftir þeim? Þið segið fólki að rangt sé að stela – en stelið þið ekki sjálfir? Psa 50:16; Psa 50:21