2. Timoteovi 1 v různých překladech

Vyberte překlady k porovnání

Vyberte překlad, aby se přidal do seznamu; sloupce jdou v pořadí seznamu.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Čeština

Русский

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

ไทย

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)

Deutsch

  • Byzantinischer Text
Lifandi Orð
1:1
OLO Frá Páli, sem að vilja Guðs er sendiboði Jesú Krists, til að flytja öllum boðskapinn um eilífa lífið, sem fæst fyrir trúna á Jesú Krist.
1:2
OLO Til Tímóteusar, míns elskaða sonar. Guð, faðir, og Kristur Jesús, Drottinn okkar, veiti þér náð, miskunn og frið.
1:3
OLO Tímóteus, mikið er ég Guði þakklátur fyrir þig. Ég bið Guð dag og nótt að blessa þig og veita þér allt sem þú þarfnast. Eins og forfeður mínir, þjóna ég Guði og kappkosta að hafa hreina samvisku.
1:4
OLO Ég þrái mjög að hitta þig á ný. Mikið yrði það gaman! Ég man að þú táraðist þegar við skildum síðast.
1:5
OLO Ég veit að þú treystir Drottni af heilum hug, rétt eins og móðir þín, hún Evníke, og Lóis amma þín, og ég held að traust þitt hafi ekki minnkað.
1:6
OLO Þess vegna hvet ég þig til að efla með þér þá náðargjöf Guðs sem í þér býr – gjöfina sem þú fékkst þegar ég lagði hendur yfir þig og bað fyrir þér.
1:7
OLO Heilagur andi sem Guð gaf þér, vill ekki að við óttumst mennina, heldur vöxum í kærleika og krafti Guðs og gætum stillingar.
1:8
OLO Ef þú endurnýjast í þessum krafti frá degi til dags, muntu aldrei blygðast þín fyrir vitnisburðinn um Drottin, eða fyrir mig, þótt ég sé í fangelsi vegna Krists. Þá muntu líka verða reiðubúinn að þjást með mér vegna Drottins, því að hann mun styrkja þig.
1:9
OLO Það var hann sem frelsaði okkur og útvaldi til að vinna sitt heilaga verk, ekki vegna þess að við ættum það skilið, heldur vegna eigin ákvörðunar, löngu áður en heimurinn varð til. Hann ætlaði að auðsýna okkur kærleika sinn og gæsku í Kristi.
1:10
OLO Nú hefur hann framkvæmt þessa áætlun sína og sent okkur Jesú Krist, frelsarann, sem braut vald dauðans á bak aftur og opnaði okkur veg til eilífs lífs fyrir trúna á hann.
1:11
OLO Síðan kaus hann mig til að flytja heiðingjunum þennan boðskap og uppfræða þá.
1:12
OLO Þess vegna þarf ég að þjást hér í fangelsinu, en ég skammast mín ekkert fyrir það því ég veit á hvern ég trúi og er þess fullviss að hann megnar að varðveita allt það sem mér er trúað fyrir, allt til þess dags er hann kemur á ný.
1:13
OLO Haltu fast við sannleikann eins og ég kenndi þér hann, einkum það sem varðar trúna og kærleikann, sem Jesús Kristur gefur.
1:14
OLO Varðveittu vel þá góðu og guðlegu hæfileika sem þér voru gefnir af heilögum anda sem í þér býr.
1:15
OLO Eins og þú veist eru bræðurnir sem hingað komu frá Litlu-Asíu, allir farnir frá mér og meira að segja Fýgelus og Hermogenes.
1:16
OLO Drottinn blessi Ónesífórus og alla hans fjölskyldu. Oft vitjaði hann mín og uppörvaði. Heimsóknir hans voru eins og ferskur andblær og aldrei blygðaðist hann sín fyrir fjötra mína.
1:17
OLO Sannleikurinn er sá að þegar hann kom til Rómar, leitaði hann mín um allt og fann mig að lokum.
1:18
OLO Guð blessi hann ríkulega þegar Kristur kemur aftur – þú veist manna best hversu hann hjálpaði til í Efesus.