OLOÞegar ég gat ekki afborið þetta lengur, ákvað ég að verða eftir í Aþenu.
3:2
OLO[3:2–3]Ég sendi Tímóteus, bróður okkar og þjón Guðs, til ykkar, til að styrkja ykkur og uppörva í trúnni og koma í veg fyrir að þið misstuð kjarkinn vegna allra erfiðleikanna sem þið mættuð. Auðvitað vitið þið að slíkir erfiðleikar eru þáttur í áætlun Guðs með okkur kristna menn.
3:3
OLO
3:4
OLOMeðan við vorum hjá ykkur, þá sögðum við ykkur að þið mynduð brátt mæta ofsóknum og það stóð heima.
3:5
OLOEn sem sagt, þegar ég þoldi ekki lengur þessa óvissu, þá sendi ég Tímóteus til að komast að því hvort þið væruð staðföst í trúnni. Ég var hræddur um að Satan hefði ef til vill fellt ykkur og erfiði okkar væri allt unnið fyrir gýg.
3:6
OLOEn nú er Tímóteus nýkominn aftur með þær gleðifréttir, að trú ykkar sé sterkari og kærleikurinn dýpri en nokkru sinni. Hann sagði einnig að þið hefðuð minnst heimsóknar okkar með gleði og þráð jafn heitt og við að við gætum hist á ný.
3:7
OLOKæru vinir, þessar fréttir, að þið séuð stöðug í Drottni, hafa huggað okkur stórlega í þeim erfiðleikum og þjáningum sem við verðum að þola hér.
3:8
OLOVið getum þolað hvað sem er, svo framarlega sem við vitum að þið séuð staðföst í trúnni á Jesú Krist.
3:9
OLOHvernig getum við nógsamlega þakkað Guði fyrir gleðina sem þið hafið veitt okkur í samfélaginu við Drottin?
3:10
OLOVið biðjum Guð þess dag og nótt að við fáum að heimsækja ykkur á ný, svo að við getum aukið enn meir við trú ykkar.
3:11
OLOÉg bið þess að sjálfur Guð, faðir okkar, og Drottinn Jesús, opni okkur leið til ykkar á ný.
3:12
OLOAuk þess bið ég Drottin að kærleikur ykkar hvers til annars og til allra, aukist æ meir, eins og kærleikurinn sem við berum til ykkar.
3:13
OLOÞannig mun Guð, faðir okkar, styrkja ykkur og helga, og hreinsa hjörtu ykkar af allri synd, svo að þið getið staðið hrein frammi fyrir honum þann dag, er Drottinn Jesús Kristur kemur aftur ásamt öllum þeim er honum tilheyra.
Your translations are the set of the last comparison you opened with “Compare” or remembered; until there is one, the first comparison opened directly — from a bookmark or a link from outside the site — becomes it. When the set has at least two translations and all of them have the passage, the comparison opens without the choice form.
Star the translations you want to keep in your favourites.
Font
Text size
In the beginning was the Word, and the Word was with God, and the Word was God
Players appear without a click and do not start on their own; a page with a video contacts youtube.com right away. While this is on, videos load from YouTube.
Load videos from
If YouTube does not respond, the video loads from the site server when a copy is there.
Reset settings
We will reset all settings to their defaults. Are you sure?