1 Tessalonicesi 3 in diverse traduzioni

Scegli le traduzioni da confrontare

Scegli una traduzione per aggiungerla all'elenco; le colonne seguono l'ordine dell'elenco.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Italiano

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

ไทย

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)

Deutsch

  • Byzantinischer Text
Lifandi Orð
3:1
OLO Þegar ég gat ekki afborið þetta lengur, ákvað ég að verða eftir í Aþenu.
3:2
OLO [3:2–3] Ég sendi Tímóteus, bróður okkar og þjón Guðs, til ykkar, til að styrkja ykkur og uppörva í trúnni og koma í veg fyrir að þið misstuð kjarkinn vegna allra erfiðleikanna sem þið mættuð. Auðvitað vitið þið að slíkir erfiðleikar eru þáttur í áætlun Guðs með okkur kristna menn.
3:3
OLO
3:4
OLO Meðan við vorum hjá ykkur, þá sögðum við ykkur að þið mynduð brátt mæta ofsóknum og það stóð heima.
3:5
OLO En sem sagt, þegar ég þoldi ekki lengur þessa óvissu, þá sendi ég Tímóteus til að komast að því hvort þið væruð staðföst í trúnni. Ég var hræddur um að Satan hefði ef til vill fellt ykkur og erfiði okkar væri allt unnið fyrir gýg.
3:6
OLO En nú er Tímóteus nýkominn aftur með þær gleðifréttir, að trú ykkar sé sterkari og kærleikurinn dýpri en nokkru sinni. Hann sagði einnig að þið hefðuð minnst heimsóknar okkar með gleði og þráð jafn heitt og við að við gætum hist á ný.
3:7
OLO Kæru vinir, þessar fréttir, að þið séuð stöðug í Drottni, hafa huggað okkur stórlega í þeim erfiðleikum og þjáningum sem við verðum að þola hér.
3:8
OLO Við getum þolað hvað sem er, svo framarlega sem við vitum að þið séuð staðföst í trúnni á Jesú Krist.
3:9
OLO Hvernig getum við nógsamlega þakkað Guði fyrir gleðina sem þið hafið veitt okkur í samfélaginu við Drottin?
3:10
OLO Við biðjum Guð þess dag og nótt að við fáum að heimsækja ykkur á ný, svo að við getum aukið enn meir við trú ykkar.
3:11
OLO Ég bið þess að sjálfur Guð, faðir okkar, og Drottinn Jesús, opni okkur leið til ykkar á ný.
3:12
OLO Auk þess bið ég Drottin að kærleikur ykkar hvers til annars og til allra, aukist æ meir, eins og kærleikurinn sem við berum til ykkar.
3:13
OLO Þannig mun Guð, faðir okkar, styrkja ykkur og helga, og hreinsa hjörtu ykkar af allri synd, svo að þið getið staðið hrein frammi fyrir honum þann dag, er Drottinn Jesús Kristur kemur aftur ásamt öllum þeim er honum tilheyra.