EphEf. EfesusbréfiðEfesios, kaflicapítulo Bréf Páls til EfesusmannaCarta de Pablo a los Efesios, kaflicapítulo 4

Traducciones

Við höfum hvert um sig sérstaka hæfileika

En þótt við séum öll eitt, þá hefur Kristur samt gefið okkur, hverju um sig, mismunandi hæfileika.

Í Davíðssálmum stendur að þegar hinn sigrandi Kristur hafi snúið aftur til himins, eftir að hafa risið upp og yfirbugað Satan, þá hafi hann gefið mönnunum dýrmætar gjafir. Takið eftir að sagt er, að hann hafi snúið aftur til himins. Þetta sýnir að hann steig niður frá upphæðum himnanna og alla leið niður til neðstu hluta jarðarinnar. Sá sem steig niður, er hinn sami og steig upp, og þetta gerði hann til að geta fyllt allt með sjálfum sér, hvar sem það er, allt frá því lægsta til hins hæsta.

Sum okkar hafa hlotið að gjöf sérstaka hæfileika til að vera postular, öðrum er gefið að predika og flytja boðskap frá Guði, sumum að vinna fólk til trúar á Krist og leiðbeina því fyrstu skrefin. Enn aðrir eru prestar eða hirðar og þeir fræða og leiðbeina hinum trúuðu á göngunni með Guði.

Þeir sem hafa hlotið þessa hæfileika, eiga að fullkomna þá sem trúa og þjóna þeim. Það er til þess að líkami Krists, söfnuðurinn, styrkist og þroskist, þar til við að lokum verðum öll einhuga í trúnni á frelsara okkar, Guðs son, og fullvaxta í Drottni – fyllumst lífi, blessun og kærleika Krists.