Psa Sálmarnir, sálmur Sálmarnir, sálmur 145
Ég vil lofa þig, þú Guð minn og konungur, og vegsama nafn þitt hvern einasta dag, já að eilífu! Psa 47:2Mikill er Drottinn! Lofið hann án afláts! Dýrð hans er meiri en við fáum skilið! Sérhver kynslóð fræðir börn sín um hans mörgu dásemdarverk. Ég vil íhuga dýrð þína og vegsemd, glæsileik þinn og kraftaverk. Undur þín eru á allra vörum, ég vil tala um stórvirki þín. Öllum er ljúft að segja frá kærleika þínum, syngja um réttlæti þitt. Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, seinn til reiði og fullur góðvildar. Psa 86:15Drottinn er öllum góður og miskunn hans hvílir yfir öllu sem hann hefur skapað. 2Pe 3:9; 1Ti 2:4Öll sköpunin þakkar þér Drottinn, og þjóð þín lofar þig. Þau segja frá dýrð ríkis þíns, og tala um kraft þinn og mátt. Psa 47:8Þau víðfrægja mikilleik þinn og máttarverk – dýrð konungdóms þíns. Því að á ríki þínu er enginn endir, veldi þitt nær frá kynslóð til kynslóðar.Psa 146:10
Drottinn reisir við hina föllnu og styður þá sem ætla að hníga. Psa 37:24Allra augu mæna á þig eftir hjálp, því að þú gefur þeim fæðu þeirra á réttum tíma. Psa 104:27Þú uppfyllir þarfir þeirra og blessar þá.
Drottinn er réttlátur og miskunnsamur í öllu sem hann gerir. Hann er nálægur öllum sem ákalla hann í einlægni. Hann uppfyllir þarfir þeirra sem óttast hann og elska. Hann heyrir hróp þeirra og hjálpar þeim. Psa 147:11Hann verndar alla þá sem elska hann, en útrýmir öllum óguðlegum.
Ég vil lofa Drottin! Og þið öll, vegsamið hans heilaga nafn á meðan ævi ykkar endist.