Psa Sálmarnir, sálmur Sálmarnir, sálmur 148
Þið sem búið á himnum, lofið Drottin! Lofið hann í upphæðum!Rev 5:13
Lofið hann allir englar, allar hersveitir himnanna. Luk 2:13Lofið hann sól og tungl og allar lýsandi stjörnur. Lofið hann hæstu himnar og þú dögg er svífur um háloftin.
Allt sem hann hefur skapað lofi nafn hans, því að þegar hann talaði, þá varð það allt til, Psa 136:5hann fékk þeim stað um aldur og ævi, setti þeim lögmál sem þau fá ekki brotið.
Lofið Drottin einnig á jörðu, líka þið skepnur í hafdjúpunum. Eldur og hagl, snjór, regn, vindur og veður öll, – allt hlýði það Drottni. Allt skal þetta lofa Drottin: fjöll og hæðir, ávaxtatré sem önnur tré, villidýr og búfé, höggormar og fuglar konungar og allar þjóðir, höfðingjar og dómarar, Psa 49:2piltar og stúlkur, aldraðir og börn. Sameiginlega skulu þau lofa Drottin, því að hann einn er þess verður og dýrð hans er ofar himni og jörðu. Hann hefur gert þjóð sína volduga. Heldur uppi heiðri hinna guðhræddu – lýðs Ísraels, þjóðarinnar sem honum stendur næst. Hallelúja! Dýrð sé Drottni!Psa 132:17