OLOMikill mannfjöldi fylgdi Jesú þegar hann gekk niður fjallshlíðina að ræðunni lokinni.
8:2
OLOOg viti menn! Þá kom holdsveikur maður til hans. Hann kraup við fætur hans og sagði: „Herra, ef þú vilt getur þú læknað mig.“
8:3
OLOJesús snerti manninn og sagði: „Ég vil að þú verðir heilbrigður!“ Og samstundis hvarf holdsveikin!
8:4
OLOJesús sagði þá við hann: „Segðu engum frá þessu strax, en farðu rakleitt til prestsins og láttu hann skoða þig. Taktu með þér fórn þá sem lög Móse gera ráð fyrir að holdsveikir beri fram, þegar þeir læknast, sem opinbera staðfestingu þess að þú sért orðinn heilbrigður.“
8:5
OLO[8:5–6]Þegar Jesús kom til Kapernaum mætti hann rómverskum liðsforingja. Liðsforinginn skýrði frá því að þjónn hans lægi lamaður heima og honum liði illa.
OLO[8:8–9]„Herra,“ sagði liðsforinginn, „ég er ekki verður þess að þú komir inn á heimili mitt (og það er reyndar ekki nauðsynlegt). Segðu aðeins núna: „Læknist þú!“ og þá mun þjónn minn verða heilbrigður! Þetta segi ég vegna þess að ég er settur undir vald æðri liðsforingja, en hef jafnframt sjálfur vald yfir mínum hermönnum. Ég segi við einn þeirra: „Farðu!“ og hann fer, og við annan: „Komdu!“ og hann kemur. Við þjón minn segi ég: „Gerðu þetta!“ og hann hlýðir skilyrðislaust. Þess vegna veit ég að þú hefur vald til að skipa þessum sjúkdómi að fara og hann mun fara!“
8:9
OLO
8:10
OLOJesús varð undrandi! Hann sneri sér að mannfjöldanum og sagði: „Hvergi í Ísrael hef ég fundið svo mikla trú!
8:11
OLOOg ég skal segja ykkur eitt: Margir útlendingar (eins og þessi rómverski liðsforingi) munu koma hvaðanæva að og sitja með Abraham, Ísak og Jakobi í konungsríki himnanna.
8:12
OLOMörgum Ísraelsmönnum – já, einmitt þeim sem konungsríkið var ætlað – mun verða kastað út í myrkrið og þar verður grátið og kveinað.“
8:13
OLOSíðan sagði Jesús við liðsforingjann: „Farðu heim til þín. Verði þér að trú þinni.“ Samstundis varð þjónninn heilbrigður!
8:14
OLOEftir þetta fór Jesús heim til Péturs. Tengdamóðir Péturs lá þar með mikinn hita.
8:15
OLOJesús snerti hönd hennar og við það hvarf hitinn. Hún reis á fætur og gaf þeim að borða.
8:16
OLOUm kvöldið voru færðir til Jesú menn sem höfðu illa anda. Hann rak illu andana út með einu orði og læknaði þá sem sjúkir voru.
8:17
OLOÞarna rættist spádómur Jesaja: „Sjúkdóma okkar og þjáningar tók hann á sig.“
8:18
OLOÞegar Jesús sá að fólk dreif stöðugt að, sagði hann lærisveinunum að þeir skyldu búa sig undir að sigla yfir vatnið.
8:19
OLOÍ sama mund sagði einn af fræðimönnum Gyðinga við hann: „Meistari, ég vil fylgja þér hvert sem þú ferð!“
8:20
OLOJesús svaraði: „Refir eiga greni og fuglarnir hreiður, en ég, Kristur, á ekkert heimili – engan stað til að hvílast.“
8:21
OLOÞá sagði annar úr hópi lærisveinanna: „Herra, þegar faðir minn er dáinn, skal ég fylgja þér.“
8:22
OLO„Fylgdu mér núna!“ sagði Jesús. „Láttu hina andlega dauðu annast sína dauðu.“
8:23
OLOSíðan steig Jesús út í bátinn og hélt yfir vatnið ásamt lærisveinum sínum.
8:24
OLOÞá hvessti skyndilega svo að öldurnar gengu yfir bátinn, en Jesús svaf.
8:25
OLOLærisveinarnir vöktu hann og hrópuðu: „Drottinn! Bjargaðu okkur Við erum að farast!“
8:26
OLO„Lítil er trú ykkar,“ svaraði Jesús. „Hvers vegna eruð þið hræddir?“ Síðan reis hann á fætur og hastaði á vindinn og öldurnar. Þá lægði vindinn og allt varð kyrrt!
8:27
OLOLærisveinarnir voru orðlausir af undrun og ótta. „Hver er hann eiginlega?“ spurðu þeir hver annan, „vindurinn og vatnið hlýða honum!“
8:28
OLOÞegar þeir komu að landi í byggðum Gadarena, komu á móti þeim tveir menn haldnir illum öndum. Menn þessir höfðu búið um sig í gröfunum og voru svo óðir að enginn þorði að fara þar um.
8:29
OLOÞeir hrópuðu nú til Jesú og sögðu: „Hvað vilt þú okkur, sonur Guðs? Þú hefur ekki enn leyfi til að tortíma okkur!“
Kristuksen sanat:Jumala rakasti maailmaa niin paljon
Omat käännöksesi ovat viimeksi ”Vertaa”-painikkeella avaamasi tai muistamasi vertailun käännökset; kun käännösjoukkoa ei vielä ole, ensimmäisestä suoraan – kirjanmerkistä tai sivuston ulkopuolisesta linkistä – avatusta vertailusta tulee se. Kun käännösjoukossa on vähintään kaksi käännöstä ja kaikissa niissä on tämä kohta, vertailu avautuu ilman valintalomaketta.
Merkitse tähdellä käännökset, jotka haluat suosikkeihisi.
Fontti
Tekstin koko
Alussa oli Sana, ja Sana oli Jumalan luona, ja Sana oli Jumala
Soittimet näkyvät ilman napsautusta eivätkä käynnisty itsestään; videon sisältävä sivu ottaa heti yhteyden sivustoon youtube.com. Kun asetus on käytössä, videot ladataan YouTubesta.
Mistä videot ladataan
Jos YouTube ei vastaa, video ladataan sivuston palvelimelta, kun siellä on kopio.
Asetusten palautus
Kaikki asetukset palautetaan oletusarvoihin. Haluatko varmasti jatkaa?