Psa Sálmarnir, sálmur Sálmarnir, sálmur 2
Hvílík heimska að þjóðirnar skuli ráðast gegn Drottni! Furðulegt að menn láti sér detta í hug að þeir séu vitrari en Guð! Act 4:25Leiðtogar heimsins hittast og ráðgera samsæri gegn Drottni og Kristi konungi. „Komum,“ segja þeir, „og vörpum af okkur oki hans. Slítum okkur lausa frá Guði!“
En á himnum hlær Guð að slíkum mönnum! Honum er skemmt með þeirra fánýtu ráðagerðum. Hann ávítar þá í reiði sinni og skýtur þeim skelk í bringu.
Drottinn lýsir yfir: „Þennan konung hef ég útvalið og krýnt í Jerúsalem, minni helgu borg“.
Hans útvaldi svarar: Psa 93:1; Jhn 18:37; Heb 12:22„Ég mun kunngera áform Guðs, því að Drottinn sagði við mig: „Þú ert sonur minn. Í dag verður þú krýndur. Í dag geri ég þig dýrlegan“.“ Act 13:33; Heb 1:5; Heb 5:5„Bið þú mig og ég mun leggja undir þig öll ríki heimsins. Psa 22:27Stjórnaðu þeim með harðri hendi og mölvaðu þau eins og leirkrukku!“Rev 2:27; Rev 19:15
Þið, konungar jarðarinnar! Hlustið meðan tími er til! Þjónið Drottni með óttablandinni lotningu og fagnið með auðmýkt. Fallið á kné fyrir syni hans og kyssið fætur hans svo að hann reiðist ekki og tortími ykkur! Psa 34:8; 1Pe 2:6Gætið ykkar, því að senn mun blossa reiði hans. En munið þetta: Sæll er hver sá sem leitar ásjár hjá honum.