Php Filippíbréfið, kafli Bréf Páls til Filippímanna, kafli 4

Þýðingar Bera saman

Nokkur hvatningarorð að lokum – og bæn

Kæru vinir í Kristi, ég elska ykkur og þrái að sjá ykkur, því að þið eruð gleði mín og kóróna, verkalaun mín. Elsku vinir, verið stöðug í Drottni framvegis eins og hingað til.2Co 1:14; 1Th 2:19

Nú langar mig að biðja ykkur, Evódídu og Sýntýke, um eitt: Gerið það fyrir mig, með hjálp Drottins, að sættast og standa saman.Php 2:2

Ég bið þig, kæri samherji, að hjálpa þessum konum, því að þær unnu við hlið mér að flytja öðrum gleðitíðindin. Þær störfuðu einnig með Klemens og öðrum félögum mínum, sem eiga nöfn sín rituð í lífsins bók.Luk 10:20; Rev 3:5

Verið ávallt glöð vegna samfélagsins við Drottin. Ég endurtek: Verið glöð! Ljúflyndi ykkar verði öllum kunnugt. Munið að Drottinn kemur skjótt! Jas 5:9; 1Pe 4:7Hafið ekki áhyggjur af neinu. Segið Guði frá öllum þörfum ykkar og gleymið ekki að þakka honum, því að hann svarar bænum. Mat 6:25; 1Ti 2:1Þá mun friður Guðs, sem er ofar öllum skilningi, fylla hjörtu ykkar og hugsanir, vegna þess að þið tilheyrið og treystið Kristi Jesú.Jhn 14:27; Col 3:15

Vinir mínir, nú fer ég að ljúka þessu bréfi, en mig langar þó að nefna eitt enn: Venjið ykkur á að hugsa um það sem er satt, gott og rétt. Festið í huga ykkar hið fagra og hreina og það sem gott er í fari annarra. Hugsið um allt það sem þið getið glaðst yfir og lofað Guð fyrir. Mat 5:16; Rom 13:13Venjið ykkur á að gera það sem þið lærðuð af mér og sáuð mig gera, og Guð friðarins mun vera með ykkur.Rom 15:33

Ég er glaður og þakklátur og lofa Guð fyrir að þið skylduð aftur veita mér aðstoð. Ykkur hefur alltaf verið umhugað að senda mér það sem þið gátuð, en ég veit að um tíma höfðuð þið ekki aðstöðu til þess. Þið megið ekki halda að ég hafi alltaf liðið skort, því að ég hef lært að komast af með það sem ég hef og gleðjast yfir því, hvort sem það er mikið eða lítið. 1Ti 6:6Ég kann að lifa af því sem lítið er og einnig því sem mikið er. Ég hef lært þann leyndardóm að láta mér nægja það sem ég hef, hvort sem það er magafylli eða hungur, allsnægtir eða skortur. 2Co 6:10Með hjálp Krists get ég gert allt sem Guð biður mig um. Kristur gefur mér styrk og kraft. 2Co 12:9En hvað sem því líður, þá var fallega gert af ykkur að hjálpa mér í erfiðleikum mínum.

Ykkur er vel ljóst að þegar ég kom fyrst með gleðitíðindin til ykkar og einnig eftir að ég yfirgaf Makedóníu, þá voruð þið þeir einu sem hjálpuðu mér, bæði við að gefa og þiggja. Þið voruð eini söfnuðurinn sem slíkt gerði. Og þegar ég var í Þessaloníku, þá senduð þið mér tvívegis pakka. Ég kann vel að meta gjafir ykkar, en það sem gleður mig mest eru launin sem þið munuð uppskera og fyrir þeim hafið þið vissulega unnið.2Co 12:14

Nú sem stendur hef ég allt sem ég þarf og meira en það! Gjafirnar sem Epafrodítus kom með frá ykkur voru ríkulegar. Þær eru eins og ilmandi fórnir og eru Guði þóknanlegar. Guð mun veita ykkur ríkulega allt sem þið þarfnist vegna samfélags ykkar við Krist Jesú. Psa 23:1; Eph 3:16Guði föður sé dýrð um aldir alda. Amen.

Páll

P.S. Skilið kærri kveðju frá mér til allra kristinna í Filippí. Bræðurnir sem með mér eru, biðja að heilsa. Allir aðrir sem kristnir eru hér, biðja einnig að heilsa ykkur, sérstaklega þeir sem starfa í höll keisarans. Blessun Drottins Jesú Krists sé með anda ykkar.