Biblían á netinu
Nýja testamentið og Sálmarnir í þýðingunni Lifandi Orð, samanburður og textaleit
Vers dagsins
En hvað sem um mig verður, þá skiptir mestu að líferni ykkar sé í samræmi við fagnaðarerindið. Þannig að hvort sem ég hitti ykkur aftur eða ekki, þá fái ég áfram góðar fréttir um að þið standið saman sem einn maður við að útbreiða gleðiboðskapinn,
Hann hefur hrifið okkur frá valdi myrkursins, úr ríki Satans, og leitt okkur inn í ríki síns elskaða sonar, sem keypti okkur frelsi með krossdauða sínum og fyrirgaf okkur syndirnar.
Þegar kall erkiengilsins hljómar og básúna Guðs gellur, þá mun Drottinn stíga niður af himni og kristnir menn rísa upp til fundar við hann – fyrst hinir dánu, en síðan við, sem þá verðum á lífi. Við verðum hrifin upp á skýjum ásamt þeim, til að vera með Drottni um alla eilífð.