OLOÞrem dögum eftir að Festus kom til Sesareu, til að taka við embætti, fór hann til Jerúsalem.
25:2
OLOÞar náðu æðstu prestarnir og leiðtogar Gyðinga tali af honum og sögðu frá afskiptum sínum af Páli.
25:3
OLOÞeir báðu hann að koma strax með Pál til Jerúsalem. (Ætlun þeirra var að gera honum fyrirsát á leiðinni og drepa hann.)
25:4
OLOFestus svaraði að þar sem Páll væri í Sesareu og hann sjálfur á leið þangað,
25:5
OLOværi best að þeir, sem afskipti hefðu af málinu, yrðu honum samferða til réttarhaldanna.
25:6
OLOÁtta til tíu dögum síðar kom Festus til Sesareu og hófust réttarhöldin yfir Páli strax næsta dag.
25:7
OLOÞegar Páll var leiddur inn í réttarsalinn, hópuðust Gyðingarnir frá Jerúsalem umhverfis hann og báru á hann margar alvarlegar sakir, sem þeir gátu þó ekki sannað.
25:8
OLOPáll vísaði öllum þessum ásökunum á bug og sagði: „Ég er saklaus af öllu þessu. Hvorki hef ég brotið lög Gyðinga né vanhelgað musterið og því síður gert uppreisn gegn rómverskum yfirvöldum.“
25:9
OLOFestus, sem vildi þóknast Gyðingunum, spurði Pál: „Viltu fara til Jerúsalem og leyfa mér að taka upp málið þar?“
25:10
OLO[25:10–11]„Nei,“ svaraði Páll. „Ég stend á rétti mínum og fer fram á að mál mitt verði rekið fyrir dómstóli keisarans. Þú veist vel að ég er saklaus. Hafi ég gert eitthvað, sem verðskuldar dauða, þá er ég reiðubúinn að deyja. En sé ég saklaus, þá hefur hvorki þú né nokkur annar rétt til að afhenda mig þessum mönnum, til þess að þeir geti drepið mig. Hér með áfrýja ég máli mínu til keisarans!“
25:11
OLO
25:12
OLOFestus ræddi málið við ráðgjafa sína og svaraði síðan: „Allt í lagi. Þú hefur skotið máli þínu til keisarans og til keisarans skaltu fara!“
25:13
OLOSkömmu síðar kom Agrippa konungur ásamt Berníke í nokkurra daga heimsókn til Festusar.
25:14
OLOMeðan þau dvöldust þar, ræddi Festus mál Páls við konunginn og sagði: „Hér hjá okkur er fangi sem á óútkljáð mál frá því Felix var hér.
25:15
OLOÞegar ég var í Jerúsalem sögðu æðstu prestarnir, og aðrir leiðtogar Gyðinga, mér álit sitt á málinu og heimtuðu að ég léti drepa hann.
25:16
OLOAð sjálfsögðu benti ég þeim strax á að samkvæmt rómverskum lögum væru menn ekki dæmdir til dauða fyrr en búið væri að rannsaka mál þeirra og þeir fengið að flytja vörn.
25:17
OLODaginn eftir að þeir komu hingað tók ég málið fyrir og lét leiða Pál inn.
25:18
OLOSakirnar, sem bornar voru á hann, reyndust vera allt aðrar en þær sem ég hafði búist við.
25:19
OLOÞær snerust allar um trúarbrögð þeirra og einhvern Jesú, sem var dáinn, en Páll hélt fram að væri lifandi.
25:20
OLOÉg var í stökustu vandræðum með hvernig ég ætti að dæma í málinu, svo ég spurði Pál hvort hann vildi ekki að málið yrði tekið fyrir í Jerúsalem,
25:21
OLOen þá áfrýjaði hann til keisarans. Ég skipaði því svo fyrir að hann yrði að vera í fangelsinu þangað til ég gæti komið honum til keisarans.“
25:22
OLO„Ég hefði gaman af að heyra í þessum manni,“ sagði Agrippa. „Það skaltu fá,“ svaraði Festus, „jafnvel strax á morgun.“
25:23
OLODaginn eftir kom konungurinn ásamt Berníke til réttarins með mikilli viðhöfn. Í fylgd með honum voru foringjar úr hernum og æðstu embættismenn borgarinnar. Þá gaf Festus skipun um að Páll skyldi leiddur í salinn.
25:24
OLOÞegar allir voru komnir, tók Festus til máls og sagði: „Agrippa konungur og aðrir viðstaddir, þetta er maðurinn sem Gyðingar hér og í Jerúsalem heimta að verði tekinn af lífi.
25:25
OLOÉg lít svo á að hann hafi ekkert gert sem réttlæti dauðadóm. Nú hefur hann hins vegar skotið máli sínu til keisarans og á ég því engan annan kost en að senda hann þangað.
25:26
OLOVandinn er hins vegar sá að ég veit ekki hvað ég á að skrifa keisaranum, því að engin kæra liggur frammi gegn manninum! Þess vegna hef ég leitt hann fyrir ykkur, og þó einkanlega þig, Agrippa konungur. Ég vil fá botn í málið, svo ég viti hvað ég á að skrifa.
25:27
OLOÞað væri lítið vit í að senda fanga til keisarans án ákæru!“
Parole di Cristo:Poiché Dio ha tanto amato il mondo
Le tue traduzioni sono l’insieme dell’ultimo confronto che hai aperto con «Confronta» o ricordato; finché non ce n’è uno, lo diventa il primo confronto aperto direttamente — da un segnalibro o da un link esterno al sito. Quando l’insieme comprende almeno due traduzioni e tutte contengono il passo, il confronto si apre senza il modulo di scelta.
Segna con una stella le traduzioni da tenere nei preferiti.
Carattere
Dimensione del testo
Nel principio era la Parola, la Parola era con Dio, e la Parola era Dio
I lettori compaiono senza clic e non si avviano da soli; una pagina con un video contatta subito youtube.com. Finché l'impostazione è attiva, i video vengono caricati da YouTube.
Carica i video da
Se YouTube non risponde, il video viene caricato dal server del sito quando lì è presente una copia.
Ripristina le impostazioni
Tutte le impostazioni torneranno ai valori predefiniti. Sei sicuro?