Galati 5 in diverse traduzioni

Scegli le traduzioni da confrontare

Scegli una traduzione per aggiungerla all'elenco; le colonne seguono l'ordine dell'elenco.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Italiano

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

ไทย

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)

Deutsch

  • Byzantinischer Text
Lifandi Orð
5:1
OLO Kristur frelsaði okkur til þess að við skyldum lifa í frelsi. Verið því staðföst og látið ekki aftur leggja á ykkur þrældómsfjötra, sem binda ykkur föst við lög og siðvenjur Gyðinga.
5:2
OLO Takið eftir, því þetta er mikilvægt: Ef þið ætlið að verða réttlát í augum Guðs með því að láta umskerast og hlýða lögum Gyðinga, þá getur Kristur ekki frelsað ykkur.
5:3
OLO Ég endurtek: Hver sá sem reynir að þóknast Guði með því að láta umskerast, verður upp frá því að hlýða öllum lögum Gyðinga eða glatast ella.
5:4
OLO Kristur er ykkur gagnslaus, ef þið haldið að þið getið greitt skuld ykkar við Guð með því að halda þessi lög – og þar með hafið þið misst af náð Guðs.
5:5
OLO En með hjálp heilags anda, trúum við því hins vegar að Kristur hafi dáið til að hreinsa burt syndir okkar og að hann komi öllu í lag milli okkar og Guðs.
5:6
OLO Við, sem höfum eignast eilíft líf hjá Kristi, þurfum hvorki að hafa áhyggjur af því hvort við séum umskorin eða ekki, né hvort við förum eftir siðum Gyðinga eða ekki – allt sem við þörfnumst er trú sem starfar í kærleika.
5:7
OLO Þið byrjuðuð vel, en hver truflaði ykkur eða hindraði í að fylgja sannleikanum?
5:8
OLO Áreiðanlega ekki Guð, því að það var hann sem kallaði ykkur til frelsis í Kristi.
5:9
OLO Ef eitt ykkar er vegvillt, þá nægir það til að villa um fyrir öllum hinum.
5:10
OLO Ég treysti því að Drottinn muni aftur koma ykkur á sömu skoðun og þá sem ég hef á þessum hlutum. Guð mun hafa afskipti af manninum sem truflaði ykkur og olli ruglingnum.
5:11
OLO Sumir segja, að ég prediki sjálfur að umskurn og hlýðni við lög Gyðinga séu nauðsynlegir þættir í hjálpræðinu. Þá væri ég ekki lengur ofsóttur – því að slíkur boðskapur hneykslar engan. Sú staðreynd, að ég er alltaf ofsóttur, sannar hins vegar að ég predika enn að hjálpræðið fáist einungis fyrir trú á það verk sem Kristur vann á krossinum.
5:12
OLO Ég óska þess eins að þessir fræðimenn sem vilja umskera ykkur, skeri þess í stað á allt samband sitt við ykkur og láti ykkur í friði.
5:13
OLO Kæru vinir, þið hafið öðlast frelsi – ekki til að gera það sem rangt er, heldur til að elska og þjóna hvert öðru.
5:14
OLO Öll lög Gyðinga má draga saman í eitt boðorð: Elskaðu aðra eins og sjálfan þig.
5:15
OLO Ef þið eruð sífellt að finna að og kvarta, í stað þess að sýna hvert öðru kærleika, þá gætið ykkar! Varið ykkur á að spilla ekki hvert fyrir öðru.
5:16
OLO Ég hvet ykkur til að hlýða aðeins því sem heilagur andi segir ykkur. Hann mun segja ykkur hvert þið eigið að fara og hvað þið eigið að gera, og þá munuð þið ekki lengur hlýðnast sjálfselskunni.
5:17
OLO Það er í eðli okkar að gera hið illa, einmitt það sem heilagur andi segir okkur að láta ógert. Sama er að segja um hið góða sem heilagur andi kemur til leiðar, þegar hann fær rúm í lífi okkar, það stendur í gegn okkar illa eðli. Þessi tvö öfl innra með okkur eiga í stöðugri baráttu um yfirráð yfir okkur og þau munu aldrei láta okkur afskiptalaus.
5:18
OLO Þegar þið látið leiðast af heilögum anda, þá þurfið þið ekki lengur að þvinga ykkur til hlýðni við lög Gyðinga.
5:19
OLO En ef þið hins vegar látið eigingirnina leiða ykkur, þá verður afleiðingin þessi í lífi ykkar: Óhreinar hugsanir, löngun í siðlausar nautnir,
5:20
OLO hjáguðadýrkun, andakukl, fjandskapur og deilur, afbrýðisemi, reiði, eigingirni, sundrung og flokkadrættir. Rangkenningar munu koma fram,
5:21
OLO öfund, drykkjuskapur, svall og fleira í þeim dúr. Og enn einu sinni segi ég ykkur, eins og ég hef oft sagt áður, að sá sem lifir slíku lífi mun ekki erfa guðsríki.
5:22
OLO Ef hins vegar heilagur andi stjórnar lífi okkar, þá skapar hann eftirfarandi ávexti í okkur: Kærleika, gleði, frið, þolinmæði, gæsku, góðvild, trúmennsku,
5:23
OLO hógværð, sjálfsstjórn og bindindi, – ekkert af þessu er í andstöðu við lög Gyðinga.
5:24
OLO Þeir sem tilheyra Kristi, hafa krossfest hinar illu og holdlegu hvatir sínar á krossi hans.
5:25
OLO Ef við lifum í krafti heilags anda, þá fylgjum við einnig leiðsögn hans í einu og öllu.
5:26
OLO Þá þurfum við ekki að keppa eftir heiðri og vinsældum, því slík samkeppni vekur aðeins afbrýðisemi og fjandskap.