Matteo 16 in diverse traduzioni

Scegli le traduzioni da confrontare

Scegli una traduzione per aggiungerla all'elenco; le colonne seguono l'ordine dell'elenco.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Italiano

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

ไทย

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)
Lifandi Orð
16:1
OLO Dag nokkurn komu farísear og saddúkear til Jesú og vildu sannprófa þá fullyrðingu hans að hann væri Kristur. Þeir báðu hann að sýna sér tákn af himni. Þá sagði Jesús:
16:2
OLO [16:2–3] „Þið eigið auðvelt með að átta ykkur á veðrinu. Kvöldroði boðar góðviðri að morgni, en morgunroði og dimm ský vita á vont veður. En tákn tímanna, þau getið þið ekki skilið.
16:3
OLO
16:4
OLO Þessi illa og vantrúaða þjóð biður um sérstakt tákn af himnum, en hún mun ekki fá annað tákn en það sem Jónas fékk.“ Að þessu mæltu gekk hann burt frá þeim.
16:5
OLO Þegar lærisveinarnir komu yfir vatnið, tóku þeir eftir því að þeir höfðu gleymt að hafa með sér nesti.
16:6
OLO „Varið ykkur!“ sagði Jesús, „varið ykkur á súrdeigi faríseanna og saddúkeanna.“
16:7
OLO Þeir héldu að hann segði þetta af því að þeir höfðu gleymt að taka með sér brauð.
16:8
OLO Jesús vissi hvað þeir hugsuðu og bætti við: „Lítil er trú ykkar! Af hverju hafið þið áhyggjur af mat?
16:9
OLO Hvar er skilningur ykkar? Munið þið ekki eftir brauðunum fimm sem nægðu handa fimm þúsund manns, og öllu því sem gekk af?
16:10
OLO Og munið þið ekki heldur eftir þúsundunum fjórum og öllu sem þá varð afgangs?
16:11
OLO Hvernig datt ykkur í hug að ég væri að tala um mat? En ég endurtek: Varið ykkur á súrdeigi faríseanna og saddúkeanna!“
16:12
OLO Þá skildu þeir loks að með „súrdeiginu“ átti hann við varasamar kenningar farísea og saddúkea.
16:13
OLO Þegar Jesús kom til Sesareu Filippí spurði hann lærisveina sína: „Hvern segir fólk mig vera?“
16:14
OLO Þeir svöruðu: „Sumir segja að þú sért Jóhannes skírari, aðrir Elía, og enn aðrir Jeremía eða einhver af spámönnunum.“
16:15
OLO „En þið,“ spurði hann, „hvað segið þið?“
16:16
OLO Símon Pétur svaraði: „Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs.“
16:17
OLO „Sæll ert þú, Símon Pétur,“ svaraði Jesús, „því faðir minn á himnum hefur sjálfur sannfært þig um þetta – þú hefur þetta ekki frá neinum manni.
16:18
OLO Þú ert Pétur – kletturinn – á þessum kletti mun ég byggja söfnuð minn og vald vítis mun ekki megna að yfirbuga hann.
16:19
OLO Ég mun gefa þér lykla himnaríkis. Það sem þú leysir á jörðu skal verða leyst á himnum!“
16:20
OLO Síðan lagði hann ríkt á við lærisveinana að segja engum að hann væri Kristur.
16:21
OLO Eftir þetta tók Jesús að segja lærisveinum sínum berum orðum að hann yrði að fara til Jerúsalem. Þar mundu leiðtogar þjóðarinnar ofsækja hann og lífláta, en hann síðan rísa upp að þrem dögum liðnum.
16:22
OLO Pétri blöskruðu þessi orð. Hann leiddi Jesú afsíðis til að tala um fyrir honum og sagði: „Guð hjálpi þér! Þetta mun aldrei koma fyrir þig!“
16:23
OLO Jesús sneri sér að Pétri og sagði: „Burt með þig Satan! Þú ert á móti mér! Þú lítur ekki á málið frá sjónarmiði Guðs, heldur manna.“
16:24
OLO Síðan sagði Jesús við lærisveinana: „Vilji einhver fylgja mér þá verður hann að afneita sjálfum sér, taka upp kross sinn og fylgja mér.
16:25
OLO Sá sem vill njóta lífsins að eigin geðþótta mun týna því, en sá sem fórnar lífi sínu mín vegna, mun finna það.
16:26
OLO Hverju eru menn bættari þótt þeir eignist allan heiminn, ef þeir glata eilífa lífinu?
16:27
OLO Ég, mannssonurinn, mun koma ásamt englum mínum í dýrð föðurins og dæma sérhvern eftir verkum hans.
16:28
OLO Sumir ykkar, sem hér standa, munu lifa og sjá mig í konungsríki mínu.“