여러 번역본으로 본 시편 41
Lifandi Orð
41:1
41:2
OLO
41:3
OLO
Drottinn verndar hann og heldur í honum lífinu. Hann lætur hann njóta sæmdar og frelsar hann frá óvinum hans.
41:4
OLO
Drottinn annast hann á sóttarsæng, veitir honum hvíld og hressing.
41:5
OLO
Ég bað: „Drottinn, miskunnaðu mér. Læknaðu sál mína því að ég hef syndgað gegn þér.“
41:6
OLO
Óvinir mínir biðja mér bölbæna og segja: „Bara að hann deyi sem fyrst svo að allir gleymi honum!“
41:7
OLO
Sumir sem heimsækja mig í veikindunum eru að þykjast. Innst inni hata þeir mig og líkar vel að ég er sjúkur. Þegar út er komið baktala þeir mig.
41:8
OLO
Hatursmenn mínir hæða mig og spotta. Þeir skrafa og pískra hvað gera skuli þegar ég er allur
41:9
OLO
„Þetta er banvænt, hvað sem það er,“ segja þeir, „honum mun aldrei batna.“
41:10
OLO
Og besti vinur minn, hann snerist líka gegn mér, maðurinn sem ég treysti svo vel, hann sem át við borð mitt.
41:11
OLO
En, Drottinn, yfirgef mig ekki! Miskunnaðu mér og læknaðu mig svo að ég geti endurgoldið þeim!
41:12
OLO
Ég veit að þú elskar mig og að þú munt ekki láta óvini mína hlakka yfir mér.
41:13
OLO [41:13–14]
13Vegna sakleysis míns hefur þú varðveitt mig og lætur mig lifa með þér að eilífu. 14Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, frá eilífð til eilífðar. Amen. Amen.
41:14
OLO