OLO[41:1–2]Guð blessar þann sem hjálpar bágstöddum. Á mæðudeginum bjargar Drottinn honum.
41:2
OLO
41:3
OLODrottinn verndar hann og heldur í honum lífinu. Hann lætur hann njóta sæmdar og frelsar hann frá óvinum hans.
41:4
OLODrottinn annast hann á sóttarsæng, veitir honum hvíld og hressing.
41:5
OLOÉg bað: „Drottinn, miskunnaðu mér. Læknaðu sál mína því að ég hef syndgað gegn þér.“
41:6
OLOÓvinir mínir biðja mér bölbæna og segja: „Bara að hann deyi sem fyrst svo að allir gleymi honum!“
41:7
OLOSumir sem heimsækja mig í veikindunum eru að þykjast. Innst inni hata þeir mig og líkar vel að ég er sjúkur. Þegar út er komið baktala þeir mig.
41:8
OLOHatursmenn mínir hæða mig og spotta. Þeir skrafa og pískra hvað gera skuli þegar ég er allur
41:9
OLO„Þetta er banvænt, hvað sem það er,“ segja þeir, „honum mun aldrei batna.“
41:10
OLOOg besti vinur minn, hann snerist líka gegn mér, maðurinn sem ég treysti svo vel, hann sem át við borð mitt.
41:11
OLOEn, Drottinn, yfirgef mig ekki! Miskunnaðu mér og læknaðu mig svo að ég geti endurgoldið þeim!
41:12
OLOÉg veit að þú elskar mig og að þú munt ekki láta óvini mína hlakka yfir mér.
41:13
OLO[41:13–14]13Vegna sakleysis míns hefur þú varðveitt mig og lætur mig lifa með þér að eilífu. 14Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, frá eilífð til eilífðar. Amen. Amen.
Các bản dịch của bạn là bộ bản dịch của lần so sánh gần nhất mà bạn mở bằng nút “So sánh” hoặc đã ghi nhớ; khi chưa có bộ nào, lần so sánh đầu tiên mở trực tiếp — từ dấu trang hoặc liên kết bên ngoài trang web — sẽ trở thành bộ đó. Khi bộ này có ít nhất hai bản dịch và tất cả đều có đoạn này, phần so sánh mở ra mà không qua biểu mẫu chọn.
Gắn sao cho các bản dịch bạn muốn giữ trong mục Yêu thích.
Phông chữ
Cỡ chữ
Ban đầu có Thiên Ngôn. Thiên Ngôn ở với Thượng Đế và Thiên Ngôn là Thượng Đế