여러 번역본으로 본 시편 45
Lifandi Orð
45:1
OLO [45:1–2]
Hjarta mitt svellur af fögrum orðum. Ég vil flytja konungi ljóð. Tunga mín er penni hraðritarans, hún flytur langa sögu á augabragði:
45:2
OLO
45:3
OLO
Þú ert fegurri en mannanna börn. Blessun streymir um varir þínar. Velþóknun Guðs er yfir þér að eilífu.
45:4
OLO
Þú hetja, tak herklæði þín, máttugur ertu og krýndur ljóma
45:5
OLO
Sæktu fram! Sigursæll ertu, vörður tryggðar og réttlætis. Gakk fram – máttarverk þín verði á allra vörum!
45:6
OLO
Örvar þínar eru hvesstar, óvinir falla að fótum þér.
45:7
OLO
Hásæti þitt, ó Guð, stendur um eilífð. Réttlætið er sproti þinn.
45:8
OLO
Þú elskar hið góða hefur andstyggð á illsku. Því hefur Guð, þinn Guð, sveipað þig gleði sem engan annan.
45:9
OLO
Skikkja þín ilmar af myrru, alóe og kassíu. Hallir þínar eru skreyttar fílabeini og fyllast af ljúfum tónum.
45:10
OLO
Konungadætur eru í hópi vinkvenna þinna. Drottningin stendur þér við hlið, fagurlega klædd og skreytt skíra gulli frá Ófír!
45:11
OLO [45:11–12]
„Dóttir mín, hlustaðu. Ég vil gefa þér ráð: Gleymdu heimþránni, vertu ekki döpur. Konungurinn elskar þig og gleðst yfir fegurð þinni. Sýndu honum lotningu því hann er herra þinn.
45:12
OLO
45:13
OLO
Íbúar Týrus, baða þig í gjöfum og auðmenn þjóðarinnar leita hylli þinnar.“
45:14
OLO
Brúðurin – konungsdóttir – bíður í skrauthýsi sínu, íklædd fegursta djásni, kjól skreyttum gulli og perlum.
45:15
OLO
Fögur er hún! Meyjarnar leiða hana á fund konungs.
45:16
OLO
Þær fara í skrúðgöngu gegnum hliðið. Þarna er höllin!
45:17
OLO [45:17–18]
17„Synir þínir verða allir konungar og feta í fótspor föður síns. Þeir munu sitja á hásætum víðs vegar um heim!“ 18„Ég mun gera nafn þitt kunnugt meðal allra kynslóða og þjóðir jarðarinnar munu hylla þig að eilífu.“
45:18
OLO