OLO[45:1–2]Hjarta mitt svellur af fögrum orðum. Ég vil flytja konungi ljóð. Tunga mín er penni hraðritarans, hún flytur langa sögu á augabragði:
45:2
OLO
45:3
OLOÞú ert fegurri en mannanna börn. Blessun streymir um varir þínar. Velþóknun Guðs er yfir þér að eilífu.
45:4
OLOÞú hetja, tak herklæði þín, máttugur ertu og krýndur ljóma
45:5
OLOSæktu fram! Sigursæll ertu, vörður tryggðar og réttlætis. Gakk fram – máttarverk þín verði á allra vörum!
45:6
OLOÖrvar þínar eru hvesstar, óvinir falla að fótum þér.
45:7
OLOHásæti þitt, ó Guð, stendur um eilífð. Réttlætið er sproti þinn.
45:8
OLOÞú elskar hið góða hefur andstyggð á illsku. Því hefur Guð, þinn Guð, sveipað þig gleði sem engan annan.
45:9
OLOSkikkja þín ilmar af myrru, alóe og kassíu. Hallir þínar eru skreyttar fílabeini og fyllast af ljúfum tónum.
45:10
OLOKonungadætur eru í hópi vinkvenna þinna. Drottningin stendur þér við hlið, fagurlega klædd og skreytt skíra gulli frá Ófír!
45:11
OLO[45:11–12]„Dóttir mín, hlustaðu. Ég vil gefa þér ráð: Gleymdu heimþránni, vertu ekki döpur. Konungurinn elskar þig og gleðst yfir fegurð þinni. Sýndu honum lotningu því hann er herra þinn.
45:12
OLO
45:13
OLOÍbúar Týrus, baða þig í gjöfum og auðmenn þjóðarinnar leita hylli þinnar.“
45:14
OLOBrúðurin – konungsdóttir – bíður í skrauthýsi sínu, íklædd fegursta djásni, kjól skreyttum gulli og perlum.
45:15
OLOFögur er hún! Meyjarnar leiða hana á fund konungs.
45:16
OLOÞær fara í skrúðgöngu gegnum hliðið. Þarna er höllin!
45:17
OLO[45:17–18]17„Synir þínir verða allir konungar og feta í fótspor föður síns. Þeir munu sitja á hásætum víðs vegar um heim!“ 18„Ég mun gera nafn þitt kunnugt meðal allra kynslóða og þjóðir jarðarinnar munu hylla þig að eilífu.“
Các bản dịch của bạn là bộ bản dịch của lần so sánh gần nhất mà bạn mở bằng nút “So sánh” hoặc đã ghi nhớ; khi chưa có bộ nào, lần so sánh đầu tiên mở trực tiếp — từ dấu trang hoặc liên kết bên ngoài trang web — sẽ trở thành bộ đó. Khi bộ này có ít nhất hai bản dịch và tất cả đều có đoạn này, phần so sánh mở ra mà không qua biểu mẫu chọn.
Gắn sao cho các bản dịch bạn muốn giữ trong mục Yêu thích.
Phông chữ
Cỡ chữ
Ban đầu có Thiên Ngôn. Thiên Ngôn ở với Thượng Đế và Thiên Ngôn là Thượng Đế