여러 번역본으로 본 시편 5
Lifandi Orð
5:1
5:2
OLO
5:3
OLO
Hlustaðu á kveinstafi mína, þú Guð, konungur minn, því að ég mun aldrei biðja til neins nema þín.
5:4
OLO
Á hverjum morgni horfi ég til himins, já til þín, og legg bænir mínar fram fyrir þig.
5:5
OLO
Ég veit að þú fyrirlítur óguðleika og að þeir sem iðka hið illa fá ekki að dveljast hjá þér.
5:6
OLO
Hrokafullir syndarar standast augnaráð þitt ekki, því að þú hatar illgjörðir þeirra.
5:7
OLO
Þú munt eyða þeim sem tala lygi og þú hefur andstyggð á morðum og svikum.
5:8
OLO
En hvað um mig? Af náð þinni fæ ég að ganga inn í musteri þitt, umvafinn vernd þinni og ást. Ég vil tilbiðja þig í djúpri lotningu.
5:9
OLO
Drottinn, leiddu mig eins og þú lofaðir mér, annars munu óvinir mínir sigra mig. Segðu mér skýrt hvað ég á að gera, og hvert ég á að fara,
5:10
OLO
því að þeir reyna að blekkja mig. Hjörtu þeirra eru full af illsku. Tortíming og dauði býr í ráðum þeirra og þeir nota svik og pretti sér til framdráttar.
5:11
OLO
Ó, Guð láttu þá fá makleg málagjöld. Þeir lendi í eigin gildru. Hrintu þeim burt vegna hinna mörgu afbrota þeirra, því að þeir storka þér.
5:12
OLO [5:12–13]
12En þeir sem treysta þér gleðjast og kætast. Þeir hrópa af gleði því þú verndar þá. Þeir sem elska þig gleðjast yfir þér. 13Því að þú, ó Guð, blessar hinn trúaða, þú verndar hann með skildi elsku þinnar.
5:13
OLO